StjórnunVæntanlegt

Mælingar á árangri mannauðsstjórnunar

09:00 – 12:00
Hannesarholt / Grundarstíg 10 / 101 Reykjavík

Það er mikilvægt að geta sýnt fram á árangur faglegrar mannauðsstjórnunar í formi talna og í samhengi við rekstur vinnustaðarins.

Það er oft sagt að það sé erfitt að stjórna því sem ekki er hægt að mæla. En það er líka bara mjög mikilvægt að vera með tölurnar sínar á tæru, hvort sem það er í áætlanagerðinni, til að rökstyðja fjárþörf, eða til að sýna fram á að eiga erindið við borðið.

Dæmi um umsagnir frá fyrri þátttakendum:

  • “Námskeiðið var mjög áhugavert og það var gaman að hlusta á þig. Ég er komin á fullt að nýta mér þau verkfæri sem þú færðir mér.”
    – Laufey Inga hjá Fagkaup
  • “Þakka þér kærlega fyrir ótrúlega áhugavert og lærdómsríkt námskeið. Þetta er klárlega eitthvað sem flestir sem sinna manauðsmálum eiga að krukka enn frekar í og innleiða í dagleg störf hjá sér. Mér fannst uppsetningin mjög góð hjá þér, gott að byrja með smá fræðslu á glærum og láta okkur svo vinna sjálf verkefni.”
    – Harpa Þöll hjá Garra

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • Lært aðferðir til að reikna út ýmsa algenga og einfalda mannauðstölfræði
  • Lært nokkrar flóknari formúlur til að reikna út arðsemi mannauðsmála o.fl.
  • Lært hvernig má tengja betur saman mannauðstölfræðina og rekstrarniðurstöður vinnustaðarins
  • Lært hvernig má betur bera saman árangur mannauðsstjórnunar á milli vinnustaða og við samkeppnisaðila
  • Lært hvernig má tengja saman ólíkar tölur, úr mannauðsmálum, sölu, þjónustu, stjórnun o.fl. og nota það til að sjá skýrar orsakasamhengi á vinnustaðnum og sjá fyrir eigin trend
  • Búið sér til grunn að mannauðsmælaborði sem líklegt er að nái augum og eyrum fjármála- og forstjóra

Fyrir hverja?

  • Mannauðsstjóra
  • Fjármálastjóra
  • Forstjóra og framkvæmdastjóra
  • Mannauðssérfræðinga