fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Fjórar kynslóðir á sama vinnustað? Hvað eiga þær sameiginlegt? Hvað skilur þær að?

24. janúar @ 09:00 - 09:45

Við fáum að heyra niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem fyrirtækið Prósent gerði í spetember sl.. Þar svöruðu fjórar kynslóðir 54 spurningum um ýmis mál tengd lífi og starfi. En margir vinnustaðir glíma við það nú, að munurinn á milli kynslóða innan starfsmannahópa er mjög mikill, enda í fyrsta sinn á vinnumarkaði þar sem kynslóðirnar eru fjórar.

Þær kynslóðir sem um ræðir eru:

  • Uppgangskynslóðin (e. baby boomers) er fólk sem fætt er á tímabilinu 1946-1964.
  • Kynslóð X er fólk fætt á tímabilinu 1965 til 1979.
  • Y kynslóðin (aldamótakynslóðin, e. millenials) er fólk fætt á árunum 1980 til 1994.
  • Z kynslóðin (þekkt á ensku sem gen z eða zoomers) er fólk fætt á árunum 1995 til 2012.

Ásamt fjölmörgum öðrum áhugaverðum niðurstöðum, sem margar hverjar komu á óvart, kemur fram í rannsókninni að uppgangskynslóðin, eða „the baby boomers“ drekkur oftast áfengi þegar kynslóðirnar fjórar eru bornar saman en unga fólkið í Z-kynslóðinni staldrar afar stutt við á vinnustöðum.

Hver verður með okkur?

Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósent

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

 

Upplýsingar

Dagsetn:
24. janúar
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.