Á Dokkufundinum, sem haldinn er í samstarfi við Skjalastjórnunarfélag Íslands, verður fjallað er um að tæknilegar áskoranir sem skjalastjórinn er að glíma við í starfi sínu sem og aðrar áskoranir í starfsumhverfi hans.
Eru skjalastjórar að hlaupa nógu hratt í tæknimálum, er starfsumhverfi okkar að breytast, hvaða áhrif hefur sjálfvirknivæðing á starfið okkar?
Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, MSc. í skjalastjórn, CIP.
Svava starfar sem skjalastjóri Arion banka hf. Hún hefur unnið við fagið frá árinu 1995 fyrst í Landsbanka Íslands, ANZA, Seðlabanka Íslands, Kaupþingi og í Arion banka. Svava er einnig prófdómari í upplýsingafræði við Háskóla Íslands og mun verða stundakennari við fagið næsta haust.
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.