- This event has passed.
Líkamsvirðing, útlitsfordómar og það sem skiptir í raun og veru máli
8. desember 2022 @ 09:30 - 10:30
Athugið við byrjum kl. 9.30 og erum til 10.15 ca.
Á þessum Dokkufundi mun Berglind Soffía fara yfir nokkra mikilvægar spurningar sem lúta að líkamsvirðingu og útlitsfordómum:
- Hvaðan koma útlitsfordómar?
- Hvernig birtast útlitsfordómar?
- Hvað eru innri og ytri fordómar?
- Hvað eigum við að gera við BMI líkamsþyngdarstuðulinn?
- Hvað ef eitthvað eigum við að láta okkur skipta máli?
Hver verður með okkur?
Berglind Soffía Blöndal
Berglind Soffía er klínískur næringarfræðingar (MSc) og doktorsnemi í næringarfræði og starfar sem klínískur næringarfræðingur hjá Heilsuvernd og Heilsugæslunni í Urðarhvarfi, þar sem hún vinnur eftir þyngdarhlutlausum nálgunum til þess að koma fólki út úr vítahring megrunarmenningar. Í frítíma Berglindar er hún svo í stjórn samtaka um líkamsvirðingu.
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.