fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Að næra delluna sína – í flæði

14. október 2022 @ 09:00 - 09:45

 Í hverju gleymdir þú þér sem barn? Hvað veitir þér ánægju í dag? ,,Dellur“ hafa stundum fengið neikvætt hlaðna merkingu í daglegu tali en í ,,dellum“ felast heilmikil lífsgæði.

Í fyrirlestrinum er fjallað um nærandi athafnir í leik og starfi og hvernig þær hafa jákvæð áhrif á heilsu, vellíðan, endurheimt og streitulosun. Hvað eru nærandi athafnir fyrir þér? Hvar birtast þær í vinnu? Áhugamálum? Heimilisstörfum? Nærandi athafnir geta falist í einhverju sem hefur fylgt okkur í gegnum lífið en þær geta líka birst í nýrri iðju og nýjum áhugamálum. Afhverju fóru allir að baka súrdeigsbrauð? Hvar gleymir þú þér í flæði?

Fjallað er  um styrkleika, flæðiskenningu Mihaly Csikszentmihalyi (flow theory), tengsl og fleiri áhrifamikla grunnþætti lífsgæða sem hafa áhrif á jákvæða heilsu í lífi og starfi.

Hver verður með okkur?

Ingibjörg Valgeirsdóttir hjá Saga Story House. Ingibjörg hefur MBA, MA-diplóma í jákvæðri sálfræði og BA-uppeldis- og menntunarfræði

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Upplýsingar

Dagsetn:
14. október 2022
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.