fbpx
Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Af hverju er ekki nóg að búa til frábært ferli?

22. september 2022 @ 09:00 - 09:45

Þegar nýtt ferli er mótað eða gerðar eru endurbætur á eldra ferli er einungis hluti af vinnunni lokið. Það sem á eftir kemur reynist starfsmönnum og stjórnendum oft þrautinni þyngri.

Á Dokkufundinum fara þær Ásdís og Margrét í gegnum helstu áskoranir sem takast þarf á við þegar sjálft ferlið er tilbúið:

  • Fyrsta hindrunin er vinnan sem þarf leggja í þau umbótaverkefni sem koma úr ferlavinnunni, en oft á tíðum eiga starfsmenn og stjórnendur erfitt með að finna tíma til að vinna verkefnin og þau hafa tilhneigingu til að daga uppi.
  • Önnur hindrunin er innleiðingin sjálf sem snýr að því að breyta hegðun starfsmanna á þann hátt að farið sé eftir nýja ferlinu en ekki framhjá því eða eftir því gamla.
  • Þriðji og síðasti þátturinn snýr svo að því hvernig við tryggjum stöðugar umbætur á bæði nýjum og núverandi ferlum innan fyrirtækisins.

Hverjar verða með okkur?

Ásdís Kristinsdóttir og Margrét Ragnarsdóttir hjá GEMBA

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Upplýsingar

Dagsetn:
22. september 2022
Tími
09:00 - 09:45
Viðburður Category:

Staðsetning

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.