- This event has passed.
Tíu góð ráð fyrir leiðandi stjórnarfólk
27. apríl 2022 @ 09:00 - 09:45
Mikil þörf er fyrir öfluga stjórnarmenn á Íslandi og miklu meiri skilningur en áður á þeim ávinningi sem fjölbreytni í formi þekkingar og hæfni gefur stjórnum. Eyþór mun fjalla um tíu atriði sem er gott fyrir fólk í stjórnum að hafa í huga ef leiða á fyrirtæki til aukinnar verðmætasköpunar.
Hver verður með okkur?
Dr. Eyþór Ívar Jónsson er forseti Akademias og einn helsti sérfræðingur Norðurlanda um stjórnarhætti fyrirtækja.
Misstir þú af fundinum?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.