Hvað er það sem þig hefur alltaf langað til að gera – en – einhvern veginn alltaf strögglað og hætt i miðju kafi? Og kannski aldrei haft betri afsökun en núna síðustu misseri – COVID!
Þrátt fyrir allskonar takmarkanir þá eru okkur allir vegir færir. Öll eigum við drauma og langanir sem við leitumst við að uppfylla – en – vantar alltaf herslumuninn, það getur verið úthaldið, skortur á þekkingu eða viðhofin sem stoppa okkur – en ekki lengur.
Á komandi vetri brettum við upp ermar og látum verkin tala – fyrsta skrefið er að mæta á þennan Dokkufund með blað og penna og setja okkur í stellingar – hripa niður markmið og henda afsökunarbókinni!
Sverrir ragnarsson hjá Unforgetable Performance
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðun á milli.