Mannsheilinn þróar ósjálfrátt með sér ákveðna velþóknun og vanþóknun sem hefur áhrif á ákvarðanatöku okkar og samskipti. Ómeðvituð hlutdrægni hefur áhrif á hegðun okkar, viðbrögð okkar, helgun okkar og þannig árangur okkar. Ef þessi ómeðvitaða hlutdrægni (unconscious bias) fer framhjá okkur, eigum við á hættu að hugsa og haga okkur með hætti sem vanmetur og takmarkar okkur sjálf og aðra. Ef við hins vegar komum auga á þessa hlutdrægni og tökum á henni í daglegu starfi okkar með þeim ábendingum og aðferðum sem eru kynntar til leiks, munum við skapa vinnustað þar sem allir geta notið sín og lagt sitt besta af mörkum.
Ómeðvituð hlutdrægni er aðferð mannsheilans til að vega á móti óhóflegu álagi sem getur hamlað frammistöðu og leitt til slæmra ákvarðana. Á Dokkufundinum fáum við nokkur ráð til að taka á hlutdrægninni og ná þannig að blómstra og efla frammistöðu alls staðar á vinnustaðnum.
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey á Íslandi