Ekkert mál er jafn brýnt að leysa eins og loftslagsmálin. Það sem uppá okkur Íslendinga stendur er að stöðva losun á 16,7 milljónum tonna af gróðurhúsalofttegundum og gera það hratt. Árangur Íslands í loftslagsmálum er ekki nógu góður og langt undir því sem raunverulega þarf. Það er því full ástæða til að taka höndum saman og horfa í stóru tölurnar. Vitað er samkvæmt tölum frá sérfræðingum Landbúnaðarháskólans og Landgræðslunnar að yfir 70% af losuninni kemur frá framræstu votlendi sem lítið