Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Frá spjallmenni í starfsmann – þróun gervigreindar síðustu mánuði

18. mars @ 09:00 - 09:45

Gervigreindin hefur tekið stór stökk síðustu mánuði og upplýsingar úreldast hratt.

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir þá þróun sem skiptir mestu máli núna: agentic AI sem framkvæmir verkefni sjálfstætt, gríðarlegar framfarir í skrifstofuverkefnum eins og Excel og PowerPoint.

Við fáum líka að kynnast Magnúsi — gervigreindaraðstoðarmanni fyrirlesarans, en Magnús les tölvupóst, skrifar LinkedIn-færslur og smíðar öpp.

Þessi Dokkufundur verður sérlega hagnýtur, fræðandi og fullur af dæmum sem þátttakendur geta farið heim með.

Hver verður með okkur?

Hjörtur Sigurðsson. Hann er verkfræðingur, gervigreindarráðgjafi og stofnandi Mynstru.

Hann þróar hugbúnað og býður upp á fræðslu um gervigreind fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hann hefur víðtæka reynslu af stafrænni innleiðingu og stjórnun.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

  • Tæknileg hæfni
  • Stafræn hæfni

 

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.

Mikilvægt
: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki hjá þér tölvupóst með tengli á upptökuna getur þú afskráð þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.

ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

Venue

  • Á vefnum