Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Hvað er hæfni?

11. mars @ 09:00 - 09:45

Á þessum Dokkufundi er því velt upp hvernig við getum verið viss um að ráða hæfasta einstaklinginn og hvernig við getum nýtt hæfileika fólks til fulls.

Í erindinu verður fjallað um norska sjónvarpsseríu, þátttökureglur alþjóða-skíðasambandsins fyrir stórmót og hvað almennt þykir eftirsóknarvert, æskilegt, sanngjarnt, árangursríkt og áhugavert.

Markmiðið er að vekja upp spurningar um hefðbundin hæfniviðmið og ráðningarferla og hvetja fólk til að rýna í eigin viðhorf, skoðanir og/eða ákvarðanir í þessum efnum.

 

Hver verður með okkur?

Sóley Tómasdóttir, eigandi Just Consulting.

Undanfarin 8 ár hefur hún unnið við ráðgjöf og fræðslu á sviði jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar. Sérfræðiþekking hennar byggir á hagnýtingu akademískra rannsókna í bland við langa reynslu af  aktívisma, viðskiptum, opinberum rekstri og stjórnmálum.

 

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist hæfniþáttunum

  • Siðfræði
  • Stjórnunarhæfni
  • Vitræn hæfni

 

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.

Mikilvægt
: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki hjá þér tölvupóst með tengli á upptökuna getur þú afskráð þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.

ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

Venue

  • Á vefnum