1. Gildissvið

Skilmálar þessir gilda um öll námskeið, vinnustofur og þjálfun sem haldin eru á vegum Dokkunnar, hvort sem um er að ræða staðnám, netnám eða blandað fyrirkomulag.
– Hér er ekki verið að vísa í Dokkufundina, en aðgangur að þeim fæst í gegnum áskrift.

Með skráningu samþykkir þátttakandi og/eða greiðandi þessa skilmála.

 

2. Skráning og greiðslur

Skráning telst bindandi þegar staðfesting hefur borist frá Dokkunni.

Dokkan sendir reikning og kröfu í netbanka fyrir námskeiðsgjöldum, á þann sem skráður er sem greiðandi þegar skráning berst.

 

3. Afbókunarskilmálar

Afbókun af hálfu þátttakanda / greiðanda

  • Afbókun sem berst m.k. 7 dögum fyrir upphaf námskeiðs:
    • full endurgreiðsla eða reikningur felldur niður, hafi hann ekki verið greiddur
  • Afbókun 3-7 dögum fyrir námskeið:
    • 50% endurgreiðsla eða full inneign á annað námskeið, val þátttakanda / greiðanda.
  • Afbókun innan 3 daga fyrir námskeið:
    • ekki endurgreitt.

Skipti á þátttakanda

  • Fyrirtæki geta alltaf sent annan þátttakanda í staðinn fyrir skráðan þátttakanda sem getur ekki mætt, án aukakostnaðar, svo lengi sem upplýsingar berast áður en námskeið hefst.

 

4. Breytingar eða niðurfelling af hálfu Dokkunnar

Dokkan áskilur sér rétt til að:

  • fresta eða fella niður námskeið vegna ónógrar þátttöku eða ófyrirséðra aðstæðna,
  • breyta kennara eða minni háttar dagskráratriðum.

Ef námskeið fellur niður:

  • námskeiðsgjald er endurgreitt að fullu eða fært sem inneign að vali kaupanda.

 

5. Endurgreiðslur

  • Endurgreiðslur fara fram innan 7 daga.

 

6. Forföll og veikindi

Ef þátttakandi kemst ekki vegna veikinda eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna er heimilt að:

  • senda annan þátttakanda í staðinn, eða
  • óska eftir inneign á næsta námskeið, eftir atvikum.

 

7. Ábyrgð og þátttaka

Dokkan ber ekki ábyrgð á óbeinum kostnaði þátttakenda vegna breytinga eða niðurfellingar, svo sem ferðakostnaði eða töpuðum tekjum.

 

8. Persónuvernd

Persónuupplýsingar eru unnar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og aðeins notaðar vegna framkvæmdar námskeiða.

 

9. Gildistaka

Skilmálar þessir taka gildi við birtingu og geta verið uppfærðir án fyrirvara.

 

 

Þessi útgáfa skilmálanna var gefin út og birt 13.02.2026