- This event has passed.
Lítil skref skipta máli: Heilsueflandi vinnustaður í verki

Á þessum Dokkufundi verður farið yfir hvernig vinnustaður getur stutt markvisst við heilsu og vellíðan starfsfólk með raunhæfum aðgerðum í daglegu starfi.
Sérstaklega verður fjallað um áhrif kyrrsetu, hreyfingar og vinnuumhverfis á líðan starfsfólks og einfaldar leiðir sem geta nýst bæði litlum og stórum vinnustöðum – því lítil skref skipta máli og geta skapað stórar breytingar til lengri tíma.
Hver verður með okkur?
Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, sérfræðingur á sviði hreyfingar hjá embætti landlæknis og verkefnastjóri Heilsueflandi vinnustaða.
Hún er menntaður sjúkraþjálfari og doktor í lýðheilsuvísindum.
Hæfniþættir
Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.
Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist hæfniþáttunum
- Sjálfsefling og áhrif
- Stjórnunarhæfni
- Hæfni til sjálfsstjórnar
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki hjá þér tölvupóst með tengli á upptökuna getur þú afskráð þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.