Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

BEZTA námskeið: Leiðbeinandi samtöl

27. janúar @ 09:00 - 12:00

STAÐNÁMSKEIÐ

Leiðbeinandi samtöl – tökum strax á málunum.

Um námskeiðið

Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 27. janúar, kl. 9-12.

Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðu atriði leiðbeinandi samtala og hvernig dæmigert samtal fer fram frá A til Ö. Fjallað verður um hlutverk og viðhorf stórnandans og hvernig best sé að taka á óæskilegri hegðun á formlegan og skipulagðan máta.

Helstu þættir námskeiðsins eru:

  • Hvað: Hugmyndafræði leiðbeinandi samtala og hlutverk stjórnandans.
  • Ávinningur: Hagnýtar leiðir til að takast á við verkefnið, þjálfun í samtalinu.
  • Verkfæri: Hvernig lítur leiðbeinandi samtal út og hvernig framkvæmi ég það.
  • Innsýn: Skilningur á því hvenær sé gott að nýta verkfærið og hvað þarf til að brjóta ísinnn.
  • Samskipti: Hve hugarfar stjórnandans er mikið lykilatriði og virk hlustun.
  • Forvarnir: Hvernig hægt er að koma í veg slík samtöl með skýrleika og væntingastjórnun í upphafi ráðningarsambands.

 

Markmið námskeiðsins:

Auk þess að öðlast dýpri skilning á leiðbeinandi samtölum sem aðferð, ættu þátttakendur að geta nýtt sér nálgunina til þess að grípa inn í krefjandi starfsmannamál á fyrri stigum.

Að námskeiði loknu ættu þátttakandur að gera svarað eftirfarandi spurningum:

  • Hvað er leiðbeinandi samtal og hvernig beitum við því verkfæri við stjórnun?
  • Hvaða þýðingu hefur að að hefja ráðningarsambandið á réttum nótum?
  • Hvað er sálfræðilegi samningurinn?
  • Hvaða gögn þarf að hafa til stuðnings?
  • Hver er grunnfærni markþjálfans og hvernig nýtist sú færni í krefjandi samtölum?
  • Að vinna með eigið hugarfar fyrir samtalið.
  • Samtalið frá A til Ö ásamt undirbúningi.
  • Eftirfylgni samtalsins
  • Hagnýtar æfingar

Af hverju þetta námskeið?

Reynslan hefur sýnt að eitt af því sem að stjórnendum finnst hve erfiðast að takast á við í sínu starfi er að leiðrétta hegðun sinna starfsmanna. Óásættanlegt hegðun getur haft mismunandi birtingarmyndir, allt frá beittum húmor yfir í ókurteisi eða í verstu tilfellum einelti. Allir stjórnendur þurfa á einhverjum tímapunkti að takast á við slíkar áskoranir í starfi sínu og þá gildir að hafa réttu verkfærin. Leiðbeinandi samtöl eru ein leið til að takast á við slík verkefni og geta veitt stjórnendum það öryggi sem til þarf að brjóta ísinn og hefjast handa.

Fyrir hverja er námskeiðið?

  • Stjórnendur og millistjórnendur fyrirtækja
  • Mannauðsstjóra sem vilja bæta við sig verkfærum í krefjandi samtölum
  • Leiðtoga og teymisstjóra sem vilja hafa færnina til að taka á slíkum samtölum
  • Lykilfólk í meðalstórum og minni fyrirtækjum með mannaforráð
  • Alla þá sem hafa áhuga á að fá aukið færni sína í að taka á erfiðum málum innan síns hóps

Leiðbeinandi:

Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, hefur víðtæka reynslu af því að nota verkfæri markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði, bæði hér heima og erlendis.

Hún er með MSc í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði frá Anglia Ruskin háskólanum í Cambridge auk þess að vera vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá International Coaching Federation.

Sérsvið Guðrúnar er þjálfun á færni leiðtoga til framtíðar. Má þar nefna þrautseigju, tilfinningagreind, nýtingu styrkleika, leiðir til að skapa aukið traust og sálrænt öryggi , ásamt nýtingu markþjálfunar í margvíslegum samtölum við starfsmenn og viðskiptavini.

Verð:

Almennt verð er kr. 34.900
EN fyrir starfsmenn aðildarfyrirtækja Dokkunnar kr. 29.900
OG – ef keypt eru 2 sæti eða fleiri er veittur sérstakur 10% afsláttur og er verðið þá kr. 26.910 fyrir hvert sæti til starfsmanna aðildarfyrirtækja og kr. 31.410 til annarra.

Hvar?

Í Hannesarholti, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík

Details

  • Date: 27. janúar
  • Time:
    09:00 - 12:00
  • Event Category:

Venue

  • Hannesarholt
  • Grundarstígur 10
    Reykjavík, Iceland
    + Google Map