Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Katar Norðursins – er þetta ekki bara gott módel?

28. janúar @ 09:00 - 09:45

Á þessum fundi ræðum við um fjölmenningarlegt samfélag á Íslandi, hvert hefur þróunin fært okkur undanfarin ár og hvert stefnum við – sem hagkerfi, samfélag eða einstaklingar?

 

Hver verður með okkur?

Sabine Leskopf, borgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur. Hún hefur unnið í málefnum innflytjenda á Íslandi í meira en 20 ár, þ.m.t. sem formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna.

Hæfniþættir

Á Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára
eða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar.

Á þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum:

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.

Mikilvægt
: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.

ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

Venue

  • Á vefnum