Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Viva Engage hjá Reykjavíkurborg, ferlið, fólkið og framtíðin

31. október @ 09:00 - 09:45

Á Dokkufundinum verður farið yfir hvernig og hvers vegna Reykjavíkurborg valdi Viva Engage sem innri samfélagsmiðil. Við fáum innsýn í þarfagreininguna sem lá til grundvallar ákvörðuninni, hvernig innleiðingin hefur verið útfærð, hvernig hefur gengið og hvaða lærdómur hefur fengist hingað til.

Einnig lítum við til framtíðar og skoðum hvernig lausnin tengist stærri sýn borgarinnar um stafræna umbreytingu á mannauðslausnum og innri kerfum.

Hverjir verða með okkur?

Helen Símonardóttir, verkefnastjóri, stafræn Reykjavík

Hallgrímur Andri jóhannsson, vörustjóri mannauðslausna hjá Reykjavíkurborg

Helen á LinkedIn

Hallgrímur á LinkedIn

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

  • Date: 31. október
  • Time:
    09:00 - 09:45
  • Event Category:

Venue

  • Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.