fbpx
Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Gervigreind og árangursrík tækniinnleiðing með áherslu á stefnumótun og mannauð

21. október @ 09:00 - 09:45

Á Dokkufundinum er lögð áhersla á að innleiðing gervigreindar snýst ekki eingöngu um tækni heldur um mannlega þáttinn – menningu, viðhorf og breytt vinnulag.
Fjallað verður um helstu hindranir sem skipulagsheildir mæta í innleiðingarferlinu og hvað rannsóknir sýna að stuðli að farsælli notkun. Einnig verður skoðað hvernig gervigreind getur orðið stuðningsaðili sem styrkir mannlega hæfni og gefur starfsfólki rými til að sinna skapandi og þýðingarmiklu starfi.

Hver verður með okkur?

Hanna Kristín Skaftadóttir, Doktorskandídat, lektor og fagstjóri viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst

Hanna Krístín á LinkedIn

Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?

Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.
MikilvægtEf þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.

Details

Date:
21. október
Time:
09:00 - 09:45
Event Category:

Venue

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.