- This event has passed.
Valdefling og tilfinningagreind í atvinnulífinu – á vinnustaðnum

Sjálfsþekking og tilfinningagreind eru valdeflandi ofurkraftar sem við getum þjálfað innra með okkur á hverjum degi.
Þrjár spurningar:
- Hvert er samspil valdeflingar og tilfinningagreindar í atvinnulífinu?
- Af hverju eru sjálfsþekking og tilfinningagreind svona valdeflandi?
- Hvert er samhengið við atvinnulífið og er möguleiki á að ég geti þjálfað bæði mig og samstarfsfólkið mitt í átt að auknum árangri?
Svörin fáum við á Dokkufundinum.
Hver verður með okkur?
Sigríður Indriða stjórnendaráðgjafi, fyrirlesari og samskiptaþjálfari
Misstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?
Skráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.
Mikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.
ATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.