fbpx
Loading Events

« All Events

Sjálfbærnivegferð Creditinfo: Frá núllpunkti til skýrrar stefnu

30. apríl @ 09:00 - 09:45

Á Dokkufundinum verður farið yfir sögu Creditinfo í sjálfbærnimálum.

Á praktískum nótum fer Reynir yfir ferlið frá því að félagið hafði ekki stefnu í málaflokknum yfir í að vera hátt metin af greiningaraðilum og hafa sérstakt vöruframboð á mörgum mörkuðum tengt sjálfbærni. Hvaða áskorunum og vörðum mætti Reynir og teymi Creditinfo á þessari vegferð og hvernig er framtíðarsýn félagsins á þeim fjölmörgu mörkuðum sem félagið starfar á.

Hver verður með okkur?

Reynir Smári Atlason – Forstöðumaður sjálfbærnimála Creditinfo Group

Reynir Smári leiðir vöruþróun, upplýsingagjöf og stefnumótun sjálfbærnimála bæði hérlendis og á öðrum mörkuðum Creditinfo. Reynir starfaði sem Lektor við verkfræðideild háskólans í Suður-Danmörku (SDU) áður en hann var ráðinn sérfræðingur hjá Landsbankanum í sjálfbærni. Reynir var einnig einn af stofnendum Circular Solutions. Hann er með Ph.D. og MSc. í umhverfis- og auðlindafræði frá HÍ. Reynir sat um þriggja ára skeið í stjórn IcelandSIF og situr nú í stjórn Festu – miðstöðvar um sjálfbærni.

Hvar verðum við?

Á vefnum – í Teams

Details

Date:
30. apríl
Time:
09:00 - 09:45
Event Category:

Venue

Á vefnum

Skráðu þig inn til að taka þátt í fundi.