BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20190101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201001T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201001T093000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200902T145935Z
LAST-MODIFIED:20201001T093726Z
UID:4766-1601541000-1601544600@dokkan.is
SUMMARY:Ekki láta gögnin hræða þig
DESCRIPTION:Vinna með tölur og gögn er löngu orðin nauðsynleg lykilhæfni í atvinnulífinu\, en oft er erfitt að vita hvar á að byrja og mörg þeirra verkfæra sem eru í boði eru ekki sérlega aðgengileg. Í þessum fyrirlestri munum við fara yfir það hvað felst í gagnadrifinni ákvarðanatöku og gagnadrifnum rekstri og hvernig hinn “venjulegi skrifstofumaður” getur með réttri aðferðafræði og einföldum tólum á borð við töflureikna tekist á við verkefni sem upp koma í daglegum rekstri  á eigin spýtur og lært að miðla gögnum með áhrifaríkum hætti. \nHver verður með okkur?\nHjalmar Gislason\, founder & CEO hjá GRID – the new face of spreadsheets\nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. \nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/gagnadrifinn-rekstur-og-akvardanataka/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/Hjálmar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201002T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201002T093000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200909T100839Z
LAST-MODIFIED:20201012T211717Z
UID:4804-1601627400-1601631000@dokkan.is
SUMMARY:Aðferð þríeykisins og öflug teymisþjálfun
DESCRIPTION:Við þurfum því miður að fresta þessum Dokkufundi um óákveðinn tíma.\nLátum vita um leið og ný dagss. hefur verið ákveðin.\nGuðríður og Ingunn hjá Attentus fara yfir aðferð Þríeykisins og tengingu við teymisþjálfun \nÞær fara yfir hvernig þjóðin hafi í raun verið í leiðtogafræðslu með þríeykinu síðustu mánuði. „Við Íslendingar höfum fengið að njóta sannra leiðtoga í okkar krísu. Það má í raun segja að almenningur hafi verið í sameiginlegri leiðtogafræðslu alla daga\, í línulegri dagskrá klukkan 14.00. Þríeykið kenndi almenningi ný orð sem oft eru notuð í teymisfræðum. Þau eru ólíkir leiðtogar og saman mynda þau mjög sterkt teymi.“ \nHverjir verða með okkur?\nGuðríður Sigurðardóttir og Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir eigendur og ráðgjafar hjá Attentus\, sérhæfa sig í mannauðsmálum\, stjórnendaráðgjöf og teymiseflingu. \nHvar?\nÍ beinni á Teams  – þú færð sendan tengil á fundinn ca. 30 mín. áður en hann hefst.\nTil að fá örugglega sendan tengil er best að skrá sig á fundinn í síðasta lagi einni klukkustund áður en hann hefst.
URL:https://dokkan.is/fundur/thrieyrkid-og-teymisstjornun/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/Attentus2016_Ingunn_P7A69042-1-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201007T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201007T093000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200831T135202Z
LAST-MODIFIED:20201009T095120Z
UID:4752-1602059400-1602063000@dokkan.is
SUMMARY:Árangursrík fjarsamskipti\, nokkur hagnýt ráð
DESCRIPTION:Eftir ástandið síðustu mánuði höfum við nánast öll þurft að færa einhver samskipti yfir á netið\, hvort sem eru hefðfundnir fundir\, teymisvinna eða kynningar. Á þessum hagnýta Dokkufundi efla þátttakendur sig í að miðla upplýsingum í gegnum netið og stuðla að árangursríkum fjarsamskiptum. Farið verður yfir lykilatriði sem snúa að framsetningu efnis\, framkomu og samskiptum á fjarfundum. Einnig verður þátttakendum gefin innsýn í notkunarmöguleika fjarvinnuforrita sem eru hvað mest notuð í dag. \nHverjir?\nHafdís Huld og Svava Björk\, stofnendur og eigendur Rata \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. \nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/aangursrikir-fjarfundir-nokkur-hagnyt-rad/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/08/Hafdis-og-Svava_2-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201008T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201008T120000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200506T135344Z
LAST-MODIFIED:20201008T082424Z
UID:1576-1602147600-1602158400@dokkan.is
SUMMARY:BEZTA: Taktu utan um teymið þitt og töflufundir
DESCRIPTION:Þú lærir:\n\n\nAð þekkja grunnatriði Lean enn betur.\nAð  verða betri leiðtogi hvar sem er í fyrirtækinu.\nAð hanna góða töflufundi.\nAð þekkja mismunandi tegundir töflufunda.\nAð hrífa teymið með þér til góðra verka.\nHvernig hægt er að beyta mismunandi aðferðum við að stuðla að og styðja við umbótamenningu á sínum vinnustað.\n\n\nFyrir hverja?\n\n\nÞá sem vilja þróast sem Lean leiðtogar.\nÞá sem vilja bæta bæði sinn árangur og árangur teymisins.\nÞá sem vilja efla leiðtogafærni sína.\nÞá sem vilja skilja betur hvað Lean gengur út á.\nÞá sem vilja læra að setja upp töflufundi með teyminu\nÞá sem vilja nýta töflufundaformið sem allra best.\nÞá sem vilja fá innsýn í mismunandi form töflufunda.\nAlla aðdáendur Lean – alltaf eitthvað nýtt.\n\n\n\n\nAf hverju þetta námskeið?\n\nLeiðtogar á öllum hæðum fyrirtækisins þurfa verkfæri til að auðvelda sér vinnuna og halda vel utan um teymið. Lean er stútfullt af verkfærum sem hægt er að nota í öllu samhnengi. Þetta námskeið tengir lean leiðtogafræðin og lean verkfærin saman. Hvað flest í því að vera lean leiðtogi? Eitt af því sem margir tengja við lean eru töflur og töflufundir og þó það líti kannski út fyrir að vera auðvelt að henda upp töflu er ýmislegt sem þarf að vera til staðar svo aðferðin verði markviss og skili þeim árangri sem stefnt er að. \nUm námskeiðið\nNámskeiðið er fyrst og fremst hagnýtt \nÁ námskeiðinu er farið yfir mikilvægi þess að vinna markvisst að uppbyggingu góðra samskipta teyma og skoðuð mismunandi form teymisfunda þar á meðal hringfundi\, töflufundi og umbótafundi.  Farið er markvisst yfir hvernig standa skal að innleiðingu töflufunda og verður tafla sett upp á námskeiðinu með nemendum. Kennd verða hlutverk Lean leiðtogans og hvernig hægt er að nýta stutta sprettfundi til að virkja umbótahugsun starfsmanna. \n\nMarkmið námskeiðsins er að þátttakendur:\n\n\nNái enn enn betri árangri sem leiðtogar\nNái tökum á að stilla upp og leiða góða töflufundi\nÞekki mismunandi tegundir töflufunda\nLæri að þekkja grunnatriði Lean enn betur\nLæri hvernig þeir geta beytt mismunandi aðferðum við að stuðla að og styðja við umbótamenningu á sínum vinnustað.\n\nLeiðbeinandi\nMargrét Ragnarsdóttir hjá Gemba\nStaður\nÁ vefnum –  það verður sendur tengill fyrir námskeiðið. \nVerð\n\nAlmennt verð er kr. 29.000\nFyrir aðildarfyrirtæki Dokkunnar kr. 22.500 – ef tveir eða fleiri frá sama aðildarfyrirtæki þá er verðið kr. 19.900\nEf tveir eða fleiri frá fyrirtæki sem ekki er í Dokkunni þá kr. 24.900.
URL:https://dokkan.is/fundur/taktu-utan-um-teymid-thitt-med-tolum-sem-virka/
LOCATION:Arion banki\, útibúið í Kringlunni á 2. hæð
CATEGORIES:BEZTA námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/05/e24615f4-1dfa-4d4c-b619-1e95c05a290c.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201009T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201009T093000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200915T161100Z
LAST-MODIFIED:20201009T095158Z
UID:4832-1602232200-1602235800@dokkan.is
SUMMARY:Aðferðir og verkfæri verkefnastjórnunar
DESCRIPTION:Verkefni eru allt í kringum okkur bæði í vinnu og einkalífi. Okkur gengur misvel að skipuleggja verkefni og fylgja þeim eftir. Til eru ýmis verkfæri til að hjálpa okkur að afmarka verkefni\, skipuleggja þau og fylgjast með framvindu þeirra. Notkun þessara verkfæra hjálpar okkur að nálgast verkefni á agaðan hátt og vinna faglega að verkefnastýringu. Á Dokkufundinum fáum innsýn í nokkur þeirra.\nHver?\nLaufey Ása Bjarnadóttir\nLaufey Ása Bjarnadóttir er verkefnastjóri hjá Íslandsbanka. Hún er tölvunarfræðingur frá HÍ og MBA gráðu frá Rennsealer Polytechnic Institute í USA. Laufey hefur um árabil starfað við verkefnastjórnun og komið að fjölbreyttum verkefnum á því tímabili. Hún hefur kennt verkefnastjórnun frá árinu 2000 í ýmsum fyrirtækjum og stofnunum og í MBA námi HÍ. \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/adferdir-og-verkfaeri-verkefnastjornunar/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/58e9e278-6f7d-488b-b3f5-d01ea4a4389e.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201015T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201015T091500
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200916T125204Z
LAST-MODIFIED:20201023T190948Z
UID:4841-1602750600-1602753300@dokkan.is
SUMMARY:Er heimilisofbeldi einkamál starfsmanns eða kemur það vinnustaðnum við?
DESCRIPTION:Með auknum tilkynningum til lögreglu um heimilisofbeldi er mikilvægt fyrir atvinnurekendur að spyrja sig hvort þeir geti lagt sitt að mörkum til að hvetja og styðja þá starfsmenn sína sem eru þolendur heimilisofbeldis og vilja leita sér hjálpar. \nÍsal hefur tekið til sinna ráða og hefur sett fram ákveðna aðgerðaáætlun til að koma til móts við og aðstoða það starfsfólk sem býr við heimilisofbeldi. Á Dokkufundinum fáum við innsýn í hvað felst í aðferðaáætlunnni og hvernig henni er fylgt eftir. \nHverjir?\nAdriana Pétursdóttir\, leiðtogi starfsmannaþjónustu hjá ISAL \nReinhold Richter aðaltrúnaðarmaður hjá ISAL \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/vinustadurinn-og-heimilisofbeldi/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/119630096_1540373426156078_6835999529294367081_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201016T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201016T120000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200506T163128Z
LAST-MODIFIED:20201012T072004Z
UID:1586-1602837000-1602849600@dokkan.is
SUMMARY:BEZTA: Microsoft Excel. Skilvirk gagnagreining með Pivot töflum
DESCRIPTION:Námskeiðinu hefur verið frestað um óákveðinn tíma!\nÞú lærir:\nAð búa til Pivot töflur og hvernig hægt er að nota þær við gagnagreiningu í Excel. \nNámskeiðið er fyrir:\nAlla þá sem vilja nota Excel á skilvirkari hátt til að ná fram verðmætum upplýsingum fyrir reksturinn og nota tímann sinn betur. \nAf hverju þetta námskeið?\nÍ öllum þeim gögnum sem finnast í nútíma fyrirtækjum leynast dýrmætar upplýsingar sem geta auðveldað stjórnendum að taka upplýstar ákvarðanir. En til þess að geta tekið upplýstar ákvarðanir þarf að vera til staðar þekking til að vinna gögnin. Pivot töflur eru að margra mati eitt öflugasta verkfæri í Microsoft Excel þar sem auðvelt er að búa til og breyta með nokkrum músarklikkum ýtarlegar og vel uppsettar skýrslur. Að kunna að gera Pivot töflur hjálpar þér að umbreyta gögnum í upplýsingar á mun skemmri tíma en áður og kannski í leiðinni að styrkja þig í sessi sem verðmætan starfsmann með gagnlega kunnáttu. \nUm námskeiðið\nNámskeiðið er stutt og hagnýtt þar sem farið verður í gegnum eftirfarandi þætti: \n\nHvað er Pivot tafla og hvað gerir Pivot töflu að eins góðu verkfæri og raun ber vitni\nHverju þarf að huga að varðandi uppsetningu á gögnum fyrir Pivot töflur\nHvernig hægt er að nota skilyrta liti og letur (conditional formatting)\nHvað er sía og sneiðari (filter og slicer) og hvernig hægt er að tengja saman margar töflur\nHvernig hægt er að nota Pivot gröf til þess að setja gögn fram á myndrænan hátt\nLeiðbeinandi mun útskýra og tala um efnið og þátttakendur fá tækifæri til að spyrja og spreyta sig sjálfir.\n\nÞátttakendur þurfa að koma með fartölvu með þráðlausu netkorti og Excel útgáfu 2013\, 2016\, 2019 eða Excel 365. \nMarkmið námskeiðsins\n\nÞá sem hafa áhuga á að auka skilvirni sína við gagnavinnslu í Excel.\nÞá sem vilja nýta tíma sinn betur með því að læra á Excel verkfæri.\nÞá sem hafa grunnþekkingu á Microsoft Excel.\n\nLeiðbeinandi\nGuðlaug Erna Karlsdóttir\nGuðlaug Erna er verkefnastjóri í Háskóla Íslands. Hún er viðskiptafræðingur frá HR og með Meistaragráðu í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Árósum. Guðlaug hefur um árabil notað Excel við vinnu sína sem viðskiptafræðingur og búið til hin ýmsu verkfæri og skýrslur til eigin nota sem og fyrir aðra. \nGuðlaug heldur úti heimasíðunni www.fruexcel.is \nStaður og stund\nÁkveðið síðar. \nVerð\n\nAlmennt verð er kr. 39.000.\nFyrir aðildarfyrirtæki Dokkunnar kr. 32.100 – ef tveir eða fleiri frá sama aðildarfyrirtæki þá er verðið kr. 28.100.\nEf tveir eða fleiri frá fyrirtæki sem ekki er í Dokkunni þá kr. 35.100.\n\nUmsagnir um námskeiðið?\n\nGargandi snilld! Það opnaðist nýr heimur fyrir mér!\nBesta excel námskeið sem ég hef farið á.\nNámskeiðið var kennt af fagmennsku\, og kenndi mér margt sem ég mun nýta mér þegar kemur að því að sía þær upplýsingar sem ég þarf út úr gögnum.\nMjög flott námskeið sem stóðst allar væntingar. Verkefnin raunhæf.\nVerkefnin voru virkilega vel upp sett og gagnleg.\nStutt og laggott. Gott námskeiðsefni sem nýtist síðar.\nÞetta kenndi mér helling af nýjum möguleikum í Pivot töflum. Bíð eftir framhaldi af þessu.\nÉg hef hingað til notað pivot á takmarkaðan hátt!\nGuðlaug hafði einlægan áhuga á viðfangsefninu og sýndi ástríðu við að koma efninu til skila.
URL:https://dokkan.is/fundur/microsoft-excel-skilvirk-gagnagreining-med-pivot-toflum/
LOCATION:Nordica Hótel\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:BEZTA námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/05/7931eb99-eaab-4336-a270-b677f83d036b.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201021T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201021T120000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200314T151050Z
LAST-MODIFIED:20200910T194353Z
UID:247-1603270800-1603281600@dokkan.is
SUMMARY:BEZTA: Ferlagreining og gerð verklagsreglna
DESCRIPTION:Þú lærir:\nAðferðir til að greina ferla og rita leiðbeiningar um verklag sem er skýrt og aðgengilegt fyrir þann hóp starfsmanna sem á að tileinka sér það. \nNámskeiðið er fyrir:\nNámskeiðið er miðað að þörfum þeirra sem vinna að ferlagreiningu og gerð verklagsreglna og vinnulýsinga (SOP). Námskeiðið byggir á viðurkenndri aðferðafræði og er óháð kerfum sem unnið er með. \nAf hverju þetta námskeið?\nÖll fyrirtæki byggja á þekkingu um hvernig best er að reka viðkomandi fyrirtæki og það er sú þekking sem gerir fyrirtæki verðmæt\, sem sagt\, uppskriftin að vörunni\, þjónustunni og innviðunum. Við þekkjum öll sérleyfi (franchise) í veitingahúsa-\, hótel-\, endurskoðunar- og ráðgjafageiranum\, en þau byggja á handbók sem er uppskriftin að því hvernig best er að reka fyrirtækið. Á þessu námskeiði er farið yfir leiðir til að greina ferla og verklag og setja það fram í handbók fyrirtækisins\, þannig að starfsmenn skilji og séu fljótir að tileinka sér það. Þekking á ferlagreiningu er hjálplega í flestum störfum og ef ekki í vinnunni\, þá heima fyrir. \nUm námskeiðið\nNámskeiðið er stutt og hagnýtt þar sem farið verður í gegnum eftirfarandi þætti: \n\nFerilhugsun og hvað ferill er\nNotkun Cross Functional flæðirita\nHvernig skilgreina á inntak\, úttak og ábyrgð í flæðiriti\nHvernig verklag er greint og sett upp í feril\nGerð verklagsreglna og vinnulýsinga\, form og tilvísanir í kröfur\n\nNámskeiðið fer fram með fyrirlestri\, myndskeiði\, umræðum og verkefni.\nÞátttakendur þurfa ekki að nota fartölvu á námskeiðinu. \nFyrir hverja er námskeiðið\nNámskeiðið er miðað að þörfum þeirra sem vinna að ferlagreiningu og gerð verklagsreglna og vinnulýsinga (SOP). Námskeiðið byggir á viðurkenndri aðferðafræði og er óháð kerfisnotkun. \nMarkmið námskeiðsins\nMarkmið námskeiðsins er að þátttakendur læri leiðir til þess að greina ferla og rita leiðbeiningar um verklag sem er skýrt og aðgengilegt fyrir þann hóp starfsmanna sem á að tileinka sér það. \nLeiðbeinandi\nKristín Björnsdóttir\, rekstrarhagfræðingur og sérfræðingur hjá Origo\, er með áratuga reynslu af gæðastjórnunar og innleiðingu hennar hjá fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum. Þá hefur hún yfir 30 ára reynslu af kennslu hjá háskólastofnunum\, Íslandsstofu og öðrum námskeiðahöldurum. \nStaður og stund\n27. maí 2020 – kl. 9.00 til 12.00\nNordica Hotel\, Suðurlandsbraut 2\, 108 Reykjavík\nMorgunverður að hætti Natura frá. kl. 8.40 \nVerð\n\nAlmennt verð er kr. 39.000.\nFyrir aðildarfyrirtæki Dokkunnar kr. 32.100 – ef tveir eða fleiri frá sama aðildarfyrirtæki þá er verðið kr. 28.100.\nEf tveir eða fleiri frá fyrirtæki sem ekki er í Dokkunni þá kr. 35.100.\n\nUmsagnir um námskeiðið\n\nGagnlegt\, efnið sett fram á einfaldan hátt og skiljanlegan.\nHnitmiðað og vel uppsett\nFlott í alla staði\nÞað var greinilegt að Kristín hefur mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði og kom efninu mjög vel frá sér.\nFrábært að fá gögnin\, á eftir að nýtast til að vinna úr námskeiðinu og til prófa að nota í sínum verkefnum.\nFramúrskarandi hæfni hjá kennara við að miðla efninu og þekkingin á því skein í gegn.\nGott námskeið þar sem þátttakendur voru virkjaði til þátttöku.\nSkýr og góð framsetning sem hvetur til frekari þekkingarleitar og bestunar á því sem hingað til hefur verið unnið með.\n\nSkráning hér fyrir neðan:
URL:https://dokkan.is/fundur/ferlagreining-og-gerd-verklagsreglna/
LOCATION:Nordica Hótel\, Suðurlandsbraut 2\, Reykjavík\, 108\, Iceland
CATEGORIES:BEZTA námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/03/ab43673d-9297-4db1-8488-5fd4584a1288.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201022T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201022T091500
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200909T100703Z
LAST-MODIFIED:20201019T163831Z
UID:4802-1603355400-1603358100@dokkan.is
SUMMARY:Tryggð viðskiptavina og langtíma árangur fyrirtækisins
DESCRIPTION:Kauphegðun og væntingar viðskiptavina hafa gjörbreyst í þeim stafræna heimi sem við lifum í og samkeppnin stóraukist. Fyrirtækjum gengur misvel að aðlagast þessum breytingum. Omni channel stefnumótun með viðskiptavininn í forgrunni getur hjálpað fyrirtækjum að umbreytast í takt við væntingar viðskiptavina\, auka tryggð og lantímaárangur fyrirtækisins.  \nÁ Dokkufundinum fáum við innsýn inn í lykilskref við mótun slíkrar stefnu. \nHver?\nEdda Blumenstein hjá Omni Channel\nEdda er eigandi og ráðgjafi hjá beOmni sem sérhæfir sig í retail ráðgjöf. Hún hefur stundað doktorsrannsóknir á árangursríkri umbreytingu fyrirtækja með mótun og innleiðingu á svokallaðri Omni channel stefnu við Leeds University Business Scholl í Bretlandi. Edda hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeið um Omni channel\, bæði hérlendis og erlendis. \nHvar?\nÍ beinni á Teams  – þú færð sendan tengil á fundinn ca. 30 mín. áður en hann hefst.\nTil að fá örugglega sendan tengil er best að skrá sig á fundinn í síðasta lagi einni klukkustund áður en hann hefst. \n 
URL:https://dokkan.is/fundur/vidskiptavinurinn-hver-er-thad/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/v4PfJpkm_400x400-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201023T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201023T091500
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200918T124152Z
LAST-MODIFIED:20201028T135335Z
UID:4864-1603441800-1603444500@dokkan.is
SUMMARY:Hannaðu líf þitt í vinnunni
DESCRIPTION:Á þessum Dokkufundi munt þú: \n\n\nFá nasaþefinn af því hvernig þú getur hannað líf þitt í vinnunni \n\n\nLæra aðferðir sem þú getur nýtt þér samdægurs til að hafa það skemmtilegra í vinnunni \n\n\nFyrir hvern?\n\nÞig ef þér finnst ekki nógu gaman í vinnunni en ætlar samt ekki að skipta um starf.\nÞig ef þú ert stjórnandi og grunar að það sé við það að slökkna á sumum starfsmanna þinna og þú vilt fá hugmyndir um hvernig hægt er að blása í glæðurnar.\nÞig ef þér finnst dauft yfir einhverjum þér nákomnum og grunar að að ástæðan sé vinnuleiði.\n\nHver?\nRagnhildur Vigfúsdóttir\, Certified Desiging Your Live Coach og PCC vottaður markþjálfi frá International Coaching Federation. \nSkilaboð frá Ragnhildi: \n“Ég hef verið í nokkrum draumastörfum\, en ég hef líka verið í vinnu þar sem tíminn var mjög lengi að líða. Sem markþjálfi vinn ég oft með fólki sem leiðist í vinnunni. Sumir vilja blása í glæðurnar\, aðrir vilja brenna brúna jafnvel þó það sé ekki önnur vinna í augsýn – og nokkrir ákveða að þrauka og þreyja þangað til þeir fara á eftirlaun. Það finnst mér satt að segja versti kosturinn – bæði fyrir einstaklinginn og fyrirtækið. Vinnan getur nefnilega verið mesti gleðigjafinn og því mikið í húfi að endurheimta gleðina. Rannsóknir sýna að starfsánægja tengist afköstum og því er mikið í húfi fyrir fyrirtæki”. \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/hannadu-lif-thitt-i-vinnunni/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/RV_Esjan-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201028T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201028T093000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200311T150140Z
LAST-MODIFIED:20201029T185617Z
UID:83-1603873800-1603877400@dokkan.is
SUMMARY:Lífeyrismálin okkar allra - hvað er gott að vita?
DESCRIPTION:Fyrir tæpum tveimur árum síðan vorum við með Dokkufund um lífeyrismálin okkar allra og vegna fjölda áskorana ætlum við að halda sambærilega fund núna. Við tökum sem sagt púlsinn á lífeyrismálunum. Hvernig virkar lífeyrissjóðakerfið okkar\, hvað getum við gert núna til að hafa einhver áhrif á réttindi okkar í framtíðinni? \nNokkrar spurningar sem við leitum svara við: \n\nHvað þarft þú að vita til að fá yfirsýn yfir þín réttindi?\nGetum við haft einhver áhrif á lífeyrisréttindin?\nHvað getur þú gert núna til að tryggja þín réttindin?\n\nHver?\nÞórey S. Þórðardóttir\, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða\nSólveig Hjaltadóttir \, fræðslustjóri Landssamtaka lífeyrissjóða \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/lifeyrismalin-okkar-allra-hvad-er-gott-ad-vita/
LOCATION:Á vefnum
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/03/8c248336698006d88a6f1a9045a103ca-1-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201029T083000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20201029T091500
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200930T074807Z
LAST-MODIFIED:20201029T185832Z
UID:4899-1603960200-1603962900@dokkan.is
SUMMARY:Velferðarþjónusta Samkaupa - afrakstur skýrrar mannauðsstefnu?
DESCRIPTION:Á Dokkufundinum verður fjallað um vegferð Samkaupa í áttina að því að verða einn eftirsóknarverðasti vinnustaður landsins. Stærsta skrefið í þá átt var stigið með tilkomu mannauðssviðs sem stofnað var árið 2018. \nÁ fundinum verður fjallað um hvaða breytingar hafa verið gerðar á siðastliðnum tveimur árum og hvernig félagið hefur innleitt og framkvæmt skýra stefnu í mannauðsmálum. Einnig verður sagt frá því hvernig sérstök áhersla hefur verið lögð á að styrkja framlínu fyrirtækisins og þeim aðgerðarpakka sem settur var í loftið á vormánuðum í miðjum Covid faraldri ásamt fjölbreyttri velferðarþjónustu sem fyrirtækið býður starfsmönnum sínum í dag. \nHver?\nGunnur Líf Gunnarsdóttir\, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaup \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/velferdarthjonusta-samkaupa-thad-sem-koma-skal/
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/2019_samkaup-61-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR