BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Dokkan
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20211022T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20211022T094500
DTSTAMP:20260421T085232
CREATED:20210908T214726Z
LAST-MODIFIED:20211025T092033Z
UID:5857-1634893200-1634895900@dokkan.is
SUMMARY:Meðvirkni er raunverulegur vandi á vinnustöðum - hvað er til ráða?
DESCRIPTION:Er meðvirkni á þínum vinnustað? Þá ættirðu að mæta á þennan spennandi viðburð hjá Dokkunni. \nMeðvirkni á vinnustað getur leynst í hinum ýmsu skúmaskotum og þrífst oft ágætlega innan fyrirtækja án þess að starfsfólk eða stjórnendur geri sér grein fyrir því. Meðvirkni er ólíkindatól sem getur tekið á sig fjölmargar birtingamyndir og það eru ýmsar ástæður fyrir því hvers vegna meðvirknimynstur skapast á vinnustaðnum. \nSigríður Indriðadóttir\, eigandi\, ráðgjafi og þjálfari hjá SAGA Competence hefur sérhæft sig í því að þjálfa starfsfólk og stjórnendur í að greina og taka á meðvirkum aðstæðum sem geta skapast á vinnustöðum og í fyrirlestrinum ætlar hún að deila með okkur af þekkingu sinni og reynslu. Hún kíkir á það hvernig meðvirkni birtist og hvaða áhrif hún hefur á starfsfólk\, menninguna og árangur fyrirtækisins\, auk þess sem hún kynnir okkur fyrir ýmsum leiðum til að taka á meðvirkum aðstæðum á vinnustað. \nHver verður með okkur?\nSigríður Indriðadóttir hjá SAGA Competence  \nSigríður er mannauðsfræðingur og markþjálfi að mennt og býr yfir áralangri reynslu og þekkingu á sviði stjórnunar\, mannauðsmála og rekstrar. Sigríður stýrði mannauðsmálum hjá Mosfellsbæ\, Mannviti og  Íslandspósti ásamt því sem hún þjálfaði fólk í mannlegum samskiptum hjá Dale Carnegie. Sigríður hefur leitt og tekið þátt í flóknum og umfangsmiklum stjórnunarverkefnum sem meðal annars hafa falist  í umbyltingu á rekstri og fyrirtækjamenningu. Hún er því vön að takast á við þær síbreytilegu áskoranir sem stjórnendur og starfsfólk glímir við í sínum störfum. Sigríður vinnur markvisst með heildstæða árangursstjórnun sem felur í sér uppbyggingu á öflugri og hvetjandi vinnustaðarmenningu sem stuðlar að vellíðan\, vexti og árangri starfsfólks og styður þannig fyrirtæki og starfsfólk í að skrifa sína eigin SÖGU. \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.\nATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðun á milli.
URL:https://dokkan.is/fundur/medvirkni-er-raunverulegur-vandi-a-vinnustodum/
LOCATION:Á vefnum
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2021/09/Sigga-bbDokkan-1-1-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR