BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Dokkan
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20210916T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20210916T094500
DTSTAMP:20260421T100842
CREATED:20210826T124808Z
LAST-MODIFIED:20210919T185730Z
UID:5775-1631782800-1631785500@dokkan.is
SUMMARY:Hvað er framundan á vinnumarkaði - eru bara endalaus tækifæri sem bíða og þá hvernig?
DESCRIPTION:Stígum inn í Völundarhús tækifæranna\, tökum þátt í byltingu á vinnumarkaði\, giggum og aukum lífsgæði. \nFjórða iðnbyltingin hefur gefið okkur tækifæri til að endurskoða svo margar hugmyndir okkar um vinnu: \n\nHver segir að það sé endilega best í dag að vinna frá kl. 9 á morgnana til kl. 17 síðdegis\, 5 daga vikunnar?\nHver segir að það sé endilega best að mæta alltaf í eitthvað eitt ákveðið húsnæði til að leysa verkefnin okkar?\nGætum við náð meiri árangri og verið meira skapandi og lausnamiðuð með því að vinna á einhvern annan hátt?\n\nFyrir ansi marga verður það þannig að vinnustaður framtíðarinnar er þar sem þú vilt hann sé og þegar þú vilt. \nÞað eru jú margir á vinnumarkaði núna að íhuga hvernig þeir vilja halda áfram\, eftir að hafa litið inn á við og aukið sjálfsþekkingu sína. Það eru margir sem munu hætta\, eða vilja hætta í núverandi starfi\, ekki endilega til að fara að fá sér álíka starf á svipuðum vinnustað\, heldur til að fara að vinna með allt öðrum hætti. Það getur verið að einhverjir fari í að leita sér að annars konar starfi hjá annars konar vinnuveitanda\, en sennilega verða mun fleiri sem velja að nýta þekkingu sína\, reynslu og hæfni\, til að afla sér lífsviðurværis á eigin forsendum. Að taka að sér verkefni sem styðja við þann lífsstíl sem fólk vill viðhafa\, ekki að láta lífsstílinn ráðast af því við hvað er starfað. \nNú er góður tími til að teikna upp eigin leiðarvísi\, að kortleggja hvaða leið við viljum fara\, í einkalífi og vinnu\, hvernig við ætlum að fara þessa leið\, á hvaða tíma\, með hverjum o.s.frv. \nHverjir verða með okkur?\n\nDr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir er dósent við HÍ og hefur sérhæft sig í vinnumarkaðsmálum. Hún hefur lengi kennt leiðtogafræði\, breytingastjórnun og um framtíð á vinnumarkaði.\nHerdís Pála Pálsdóttir hefur lengi starfað við stjórnun og mannauðsmál\, nú hjá Deloitte\, og hefur mikið verið að spá í framtíð vinnu\, vinnustaða\, vinnuafls og vinnumarkaðar.\n\nÞær Árelía og Herdís. mæta og ætla að leiða okkur í gegnum Völundarhús tækifæranna og leitast við að varpa ljósi á þau tækifæri sem bíða okkar og hvernig við getum sem best búið okkur undir að nýta þau. \nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“.\nATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðun á milli. \n  \n 
URL:https://dokkan.is/fundur/volundarhus-taekifaeranna/
LOCATION:Á vefnum
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2021/08/240654095_112825204439641_6079224525534144883_n-1.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR