BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Dokkan
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20210113T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20210113T103000
DTSTAMP:20260421T231212
CREATED:20201208T171710Z
LAST-MODIFIED:20210114T085338Z
UID:5225-1610528400-1610533800@dokkan.is
SUMMARY:Sjálfbærni - vesen eða tæknifæri til róttækra umbóta?
DESCRIPTION:Er sjálfbærni hið nýja hugtak yfir samfélagslega ábyrgð?\nHver er staðan og hvert erum við að fara – er hægt að mæla og staðfesta sjálfbærni?\nÁ þessum Dokkufundi af lengri gerðinni fáum við til leiks nokkra sérfræðinga og reynslubolta úr heimi sjálfbærs reksturs til segja okkur frá sinni nálgun og framtíðarsýn á sviði sjálfbærni – og hvað þetta þýðir allt og hvernig við getum skoðað fjálfbæran rekstur út frá margvíslegum hliðum.\n\n\n\nGunnar Sveinn Magnússon\, Íslandsbanka\nStutt myndbrot um sjálfbærni og loftslagsvá – hver er staðan í dag og nánustu framtíð?\nGunnar Sveinn mun fjalla um mikilvægi þess að öll framkvæmd í sjálfbærni vinnunni sé fagleg\, rétt skilyrði sköpuð fyrir hagaðila og mikilvægi þess að búa til hvata til að breyta rétt. Gunnar fer einnig í gegnum skilgreiningar á sjálfbærni/sjálfbærri þróun\, UFS viðmiðin\, heimsmarkmið SÞ\, TCFD ofl.\nHvaða þýðingu hefur sjálfbær rekstur fyrir fyrirtæki\, hvernig tækifærin bíða þeirra fyrirtækja sem bregðast hratt við og innleiða sjálfbærni í grunnrekstur sinn og koma þannig til móts við auknar kröfur viðskiptavina\, starfsfólks og stjórnvalda. Það getur hinsvegar verið ógnun fyrir fyrirtæki að ætla að hunsa málaflokkinn og “bíða og sjá”. (Mark Carney: Fyrirtæki sem ekki sinna málaflokknum verða farin á hausinn innan fárra ára – við fáum að vita meira um þetta).\n\n\n\nÞóra Rut Jónsdóttir\, Advania\nHeimsmarkmið í praktík – hvernig hvetjum við fleiri konur til starfa í upplýsingatækni?\nÞóra Rut mun seja okkur frá hvernig Advania hefur nálgast sjálfbærni vegferðina og hvernig þau eru að innleiða heimsmarkmiðin með að hrinda af stað verkefnum sem styðja við þau. Konur eru einungis fjórðungur af þeim sem starfa við upplýsingatækni og Þóra ætlar að velta upp spurningunni\, hvernig tengjast jafnréttismál sjálfbærni – og hvernig Advania hyggst vinna að bættu kynjahlutfalli með því að hvetja fleiri konur í tækni. Við fáum fréttir af nýlegu samstarfsverkefni Advania og fleiri og hvernig til tókst. \n\nSigurpáll Ingibergsson\, ÁTVR\nSjálfbærni er tækifæri – fjarhagslegur ávinningur\nMikið af fólki heldur að sjálfbærni fylgi kostnaður\, það er ekki rétt\, sjálfbærni er tækifæri. Þú skerð þig úr. Sigurpáll mun sýna okkur dæmi um fjárhagslegan ávinning af innleiðingu af sjálfbærni hjá ÁTVR og ávinningurinn er fléttaður saman við ávinning í umhverfis- og samfélagsmálum. \n\nSigurður Harðarson\, iCert vottunarstofu og Kåre Appel Weng hjá DNV GL Business Assurance i Denmark\nStaðfesting á sjálfbærni og Heimsmarkmiðum SÞ\nVinna við sjálfbærniverkefni leiðir okkur að fjölbreyttum upplýsingum úr mörgum áttum. Fæstir sem leggja í þessa vegferð vilja birta árangurstengdar upplýsingar án þess að fá þær að einhverju leiti staðfestar. Viðmiðunarreglur sem stuðst er við benda margar á mikilvægi þess að leita til utanaðkomandi aðila til staðfestingar á yfirlýsingum. Vottunarstofur bjóða fyrirtækjum og stofnunum úttektir í samanburði við ytri kröfur. En hvernig er staðið að því að fá hlutlaust mat á stöðunni gagnvart Heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna? \n\n\nMisstir þú af fundinum?\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum.\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn þá þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna.
URL:https://dokkan.is/fundur/sjalfbaerni-i-rekstrinum-umbaetur-eda-vesen/
LOCATION:Á vefnum
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/12/Fimmmenningar-Gra-1-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR