BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260224T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260224T094500
DTSTAMP:20260504T173759
CREATED:20260125T205751Z
LAST-MODIFIED:20260224T182204Z
UID:11145-1771923600-1771926300@dokkan.is
SUMMARY:Velferð á vinnustað - viðverustjórnun. Átaksverkefni hjá Kópavogsbæ
DESCRIPTION:Á þessum Dokkufundi fáum við að heyra um átaksverkefni hjá Kópavogsbæ um lækkun veikindafjarvista og heilsueflingu starfsfólks sem var sett af stað árið 2023 og ber heitið VELFERÐ Á VINNUSTAÐ. \nMarkmiðið með verkefninu er að draga úr fjarvistum starfsfólks og þ.a.m. veikindafjarvistum.\nEinnig að byggja upp enn betra starfsumhverfi sem styður við heilsu\, öryggi og vellíðan með skýrri vísun í mannauðsstefnu Kópavogsbæjar. \nRáðinn var starfsmaður í verkefnið til að sjá um útgáfu og innleiðingu samræmdrar viðverustefnu styðja við og fylgja stjórnendum eftir\, vinna að fræðslu og ráðgjöf og halda utan um alla verkefnisþætti. \nAllir stjórnendur og starfsfólk fengu kynningu á verkefninu og jafnframt sóttu allir stjórnendur skyldunámskeið í umhyggjusamtölum. \nHver verður með okkur?\n\nSigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri og Auður Þórhallsdóttir mannauðsráðgjafi hjá Kópavogsbæ. \n\nSigríður hefur starfað sem mannauðsstjóri hjá Kópavogsbæ í rúm 4 ár.\nHún starfaði þar á undan hjá Reykjarvíkurborg sem skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis\, sem mannauðsstjóri hjá Marel og sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Marel um árabil. Sigríður Þrúður hefur einnig starfað sem stjórnendaþjálfari hjá Franklin Covey\, stjórnendaráðgjafi og sérfræðingur í fræðslu\, starfsþróun og mælingum á starfsumhverfi á vinnustöðum.\nAuður hefur starfað sem mannauðsráðgjafi hjá Kópavogsbæ í hlutastarfi í rúm tvö ár sem sérfræðingur í átaksverkefni um lækkun fjarvista og við að innleiða samræmda viðverustjórnun hjá öllum vinnustöðum bæjarins.\nÁður starfaði hún í átta ár sem mannauðsstjóri hjá VIRK\, sem fræðslustjóri og mannauðsrágjafi hjá Samskipum og leiðtogi fræðslumála í Álverinu í Straumsvík.\nÞar á undan sem kennari og deildarstjóri grunnskóla í Reykjavík.\n\n\nHæfniþættir\n\nÁ Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda\, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar. \nÁ fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára\neða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar. \nÁ þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum: \n \nMisstir þú af fundinum eða viltu rifja upp?\n\nSkráðu þig á Dokkufundinn á hefðbundinn hátt og þú færð sendan tengil á upptöku frá fundinum. Allir sem eru skráðir á Dokkufundinn áður en honum lýkur fá sjálfkrafa senda upptökuna í tölvupósti.\n\nMikilvægt: Ef þú hefur áður skráð þig á fundinn en finnur ekki upptökuna í tölvupóstinum þínum\, þarftu að afskrá þig af fundinum – en það er einfalt – þú smellir á „Skrá mig af þessum fundi“ hér fyrir neðan skráningarformið og skráir þig svo aftur – þá færðu staðfestingarpóst með tengli á upptökuna“. \nATH: þú þarft kannski að gera Refresh á síðuna á milli.
URL:https://dokkan.is/fundur/velferd-a-vinnustad/
LOCATION:Á vefnum
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2026/01/Sigidur-THrudur-og-Audur_300.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR