BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Dokkan
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260212T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260212T094500
DTSTAMP:20260504T191455
CREATED:20251215T132223Z
LAST-MODIFIED:20260216T111814Z
UID:10845-1770886800-1770889500@dokkan.is
SUMMARY:Gögn - til valdeflingar starfsfólks
DESCRIPTION:Á þessum Dokkufundi verður tekið á kjarna þess hvers vegna það skiptir máli að veita starfsfólki aðgang að gögnum og getu til að deila þeim á skilvirkan hátt — ekki sem tæknimarkmið\, heldur sem vegferð í að byggja upp gagnadrifna menningu og skilvirkari ákvarðanatöku. \nKynningin snýr að því hvernig fyrirtæki geta losað sig úr sjálfheldu og aukið virði í því sem þau eiga nóg af – gögnum ásamt því að skapa umhverfi þar sem gagnaöflun\, deiling og notkun eru eðlilegur hluti af vinnuferlum. \nJafnframt leiðir kynningin Dokkufélaga í gegnum lykilatriði sem skipta máli fyrir stjórnendur og rekstraraðila sem vilja nýta gögn til að styðja við ákvarðanir og árangur: \n\nAf hverju aðgangur og deiling gagna skiptir máli: Hvernig það eykur skilning\, dregur úr óvissu og eykur hraða ákvarðanatöku þegar rétt gögn eru aðgengileg þeim sem þurfa þau.\nAlgengar hindranir í fyrirtækjum: Hvernig of strangt aðgengi\, handvirkar undantekningar og óljósar reglur um gagnastjórnun geta dúkkað upp og skapað skuggakerfi og óformleg vinnuferli sem draga úr skilvirkni.\nHvernig komast má út úr þessum gildrum: Aðferðir til að hanna aðgengi sem styður við ábyrgð frekar en stjórn\, með áherslu á hlutverkaskil\, tímabundinn aðgang og sýnileika í gagnanotkun.\n\nÞekkingarsvið sem koma við sögu: \n\nStjórnun og gagnadrifin umbreytingar – af hverju gögn eru ekki bara „tæki“ heldur kjarnahluti í að styðja við ábyrgð og ákvarðanatöku.\nGagnamenning og starfshættir – hvernig skapa má heilbrigða gagnamenningu sem styður við bætt aðgengi\, traust og skýra ábyrgð.\nSkipulag og gagnastjórnun – hugmyndir um hvernig fyrirtæki geta byggt upp skalanlega og örugga gagnadeilingu sem styrkir starfsmenn án þess að draga úr gagnaöryggi.\nRekstrarsýn og lausnamiðuð nálgun – hvernig aukið gagnaaðgengi getur leitt til betri niðurstöðu í daglegu starfi.\n\n  \nHver verður með okkur?\n\nDavíð Stefán Guðmundsson. \nHann er með yfir 25 ára reynslu úr viðskipta- og vöruþróun og hefur unnið hjá stórum fyrirtækjum og nýsköpunarfyrirtækjum.\nNúna sér Davíð um viðskiptaþróun hjá uiData ehf ásamt því að vera einn af eigendum þess félags. \n  \nHæfniþættir\n\nÁ Dokkufundum er lagt upp með að efla hæfni þátttakenda\, til að viðhalda og auka atvinnuhæfni þeirra – og sem styðja þátttakendur almennt við að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar. \nÁ fundunum tengjum við ýmist við þá hæfniþætti sem WEF (World Economic Forum) hefur sagt að verði í mestri eftirspurn til næstu ára\neða þá hæfniþætti sem McKinsey hefur sagt að við þurfum á að halda til að dafna á vinnumarkaði framtíðarinnar og í samfélagi framtíðarinnar. \nÁ þessum fundi fá þátttakendur fróðleik sem tengist eftirfarandi hæfniþáttum: \n \n\nHvar verðum við\nÁ vefnum – í Teams \n\n 
URL:https://dokkan.is/fundur/gogn/
LOCATION:Á vefnum
CATEGORIES:Dokkufundir - fyrir þau sem vita að framtíðin bíður ekki eftir þeim sem bíða...
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2025/12/David-Stefan-Gudmundsson_300.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR