BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Dokkan - ECPv6.15.17//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://dokkan.is
X-WR-CALDESC:Events for Dokkan
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20190101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20200923T090000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20200923T120000
DTSTAMP:20260508T104713
CREATED:20200902T132011Z
LAST-MODIFIED:20200918T111653Z
UID:4757-1600851600-1600862400@dokkan.is
SUMMARY:BEZTA: GROW - fyrir þá sem vilja læra að leiða aðra og sjálfan sig líka
DESCRIPTION:Af hverju þetta námskeið?\nFlest okkar erum stöðugt að leita leiða til að uppfæra okkur og færa okkur nær markmiðum okkar. Fátt er árangursríkara í þeirri viðleitni en góð og öflug verkfæri sem jafnframt eru einföld og hagnýt. Þess vegna viljum við kynna þig fyrir GROW módelinu\, sem er eitt aðalverkfæri markþjálfans og þú getur notað það í þinu starfi með þínu teymi bæði sem stjórnandi og sem einstaklingur. \nHvað læri ég á námskeiðinu?\n\nFerskar leiðir til að leysa flókin viðfangsefni.\nÞú horfir meira fram á við og dvelur síður við hið liðna.\nÞú þjálfar upp spurningatækni og áttar þig á að sá sem spyr spurninga stjórnar umræðunni.\nAðferðir til að vaxa í leik og starfi.\n\nMarkmið námskeiðsins\nAð þátttakendur læri að nota GROW módelið til að efla sjálfan sig og aðra. \nG = Goal\,   Hvað viltu?\nR = Reality\,   Hver er staðan?\nO = Option\,   Hvað getur þú gert?\nW = Will\,   Hversu viljug(ur) ertu? \nUm námskeiðið\nÁ þessu þriggja stunda námskeiði mun enginn læra Markþjálfun\, það tekur öllu lengri tíma. Hins vegar munu þátttakendur fá góða innsýn í hugmyndafræðina og eitt helsta módel sem markþjálfarar nota\, GROW módelið \nÞað þarf ekki að spyrja flókinna spurninga til að fá öfluga niðurstöðu. Coaching eða markþjálfun snýst um að aðstoða þann sem þiggur að ná fram því besta hjá sjálfum sér. Við gerum það með því að spyrja kröftugra spurninga og einbeita okkur að framtíðinni. Það sem er liðið er liðið og því verður ekki breytt. Framundan eru eingöngu tækifæri til að bæta sig í hlutverki stjórnanda\, starfsmanns eða bara sem einstaklins með eigi nmarkmið og gera betur\, jafnvel miklu betur. \nAllt sem við almennt köllum vandamál\, er í raun birtingamynd á markmiði sem ekki hefur verið skilgreint til að hægt sé að fást við það. Markþjálfun snýst að miklu leyti um að finna þetta markmið\, styrkja það og gera það að veruleika. Að má settu marki! \nLeiðbeinandi\nGunnar Jónatansson\nGunnar er framkvæmdastjóri og aðalþjálfari IBT á Íslandi og einn af okkar vinsælustu leiðbeinendum – margoft hefur Gunnar fyllt bæði námskeið og Dokkufundi enda hefur hann sterka tilfinningu fyrir hagnýti og einfaldleika í aðferðum sínum.\nGunnar hefur m.a. próf í verkefnastjórnun frá HÍ og markþjálfun frá Evolvia og IBT Learning & Development. \nStaður og stund\n23. september 2020 – kl. 13.00 – 16.00.\nÍ Kringlunni\, Arionbanka salurinn á 2. hæð. \nVið tryggjum 2 metra regluna og sóttvarnir eru til fyrirmyndar \nVerð\n\nAlmennt verð er kr. 39.000.\nFyrir aðildarfyrirtæki Dokkunnar kr. 32.100 – ef tveir eða fleiri frá sama aðildarfyrirtæki þá er verðið kr. 28.100.\nEf tveir eða fleiri frá sama fyrirtæki sem er ekki í Dokkunni þá kr. 35.100.\n\nMorgunverður að hætti Natura innifalinn.
URL:https://dokkan.is/fundur/grow-fyrir-tha-sem-vilja-na-lengra/
CATEGORIES:BEZTA námskeið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://dokkan.is/wp-content/uploads/2020/09/unnamed-2-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR