Við bjóðum þekkingarfyrirtækið Matís innilega velkomið í öflugan hóp Dokkufyrirtækja.
Kjörorð Matís er: Okkar rannsóknir - allra hagur
Matís ohf er öflugt þekkingarfyrirtæki sem sinnir fjölbreyttu rannsókna- þjónustu- og nýsköpunarstarfi í matvælaiðnaði.
Hjá Matís starfa margir af helstu sérfræðingum landsins í matvælatækni og líftækni; matvælafræðingar, efnafræðingar, líffræðingar, verkfræðingar og sjávarútvegsfræðingar. Einnig starfar fjöldi M.Sc. og Ph.D. nemenda við rannsóknartengt nám hjá Matís.
Helstu markmið Matís eru:
-
Efla nýsköpun og auka verðmæti matvæla
-
Stuðla að öryggi matvæla
-
Stunda öflugt þróunar- og rannsóknastarf
-
Efla samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu á alþjóðlegum vettvangi
Fyrir frekari upplýsingar um Matís, smellið á vörumerkið.
