19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Norðurál er aðili að Dokkunni

Norðurál er aðili að Dokkunni

Norðurál er komið í Dokkuna og fögnum við því innilega, að fá svo öflugt fyrirtæki í ört stækkandi Dokkufyrirtækja.

Álver Norðuráls á Grundartanga var gangsett í júní 1998 og var ársframleiðslan í upphafi 60.000 tonn og fjöldi starfsmanna 160.   Sumarið 2001 var hún aukin í 90.000 tonn á ári með gangsetningu annars áfanga.  Á árinu 2006 var framleiðslugetan aukin í 220 þúsund tonn og í 260 þúsund tonn árið 2007.

Árið 2009 framleiddi Norðurál um 278 þúsund tonn af áli.

Norðurál er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi. Fyrirtækið hefur skapað trausta atvinnu og átt verðugan þátt í að efla búsetu í nærliggjandi sveitarfélögum. Stefna Norðuráls er að starfsfólk komi sem mest úr nágrannabyggðum en um 80% starfsmanna eru búsett á Akranesi, í Borgarnesi og nærsveitum.

Norðurál er eftirsóttur vinnustaður og störfin eru fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, vélvirkjar, vélstjórar, rafvirkjar og rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast sérhæfingu við störf sín og nám hjá álverinu.

Nánari upplýsingar um Norðurál má fá með því að smella á vörumerkið:

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan