19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Ísavía er nýtt Dokkufyrirtæki

Ísavía er nýtt Dokkufyrirtæki

Við bjóðum starfsfólk Ísavía velkomið í Dokkuna.

Á LANDI OG Í LOFTI

Isavia annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi og stýrir jafnframt flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð og eitt það stærsta í heiminum. Eitt af hlutverkum Isavia er að tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar alþjóðlegar öryggiskröfur og aðferðir.

Dótturfélög

Hjá móðurfélagi Isavia starfa um 630 manns. Auk þess starfa hjá dótturfélögum tæplega 120 manns hjá Fríhöfninni og um 30 hjá Tern.


Stefnumið


Isavia vill tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar öryggiskröfur og aðferðir, að flugvernd sé fullnægjandi og að starfsemi félagsins njóti viðurkenningar á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Við styðjum við almenna flugstarfsemi á Íslandi og stuðlum að því að hún dafni hér á landi í sátt við samfélagið með sérstakri áherslu á umhverfismál. Við viljum efla þekkingu og færni starfsmanna okkar og leggjum á það áherslu að skapa þeim gott starfsumhverfi. Isavia styður og eflir starfsemi í samfélaginu sem er mikilvæg vegna kjarnastarfsemi félagsins eða er því til vegsauka.

Meira um Ísavía


Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan