|
|
Skema er nýtt Dokkufyrirtæki
Við bjóðum starfsfólk Skema velkomið í hópinn!
Um Skema
Skema er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum og kennslu – með sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði að leiðarljósi.
Skema stendur fyrir námskeiðum fyrir yngri kynslóðina í leikjaforritun og mun stuðla að því að kennsla í forritun verði í boði í grunnskólum landsins auk þess að rannsaka þau áhrif sem kennsla í forritun hefur á hina ýmsu þætti þroska og námsgetu barna.
Skema ehf. var stofnað í framhaldinu af því að hugmyndin “Börnin í Undralandi Tölvuleikjanna” hlaut titilinn “Fræ ársins 2011“. Þökkum Háskólanum í Reykjavík, Össur hf., Samtökum iðnaðarins, Klak – nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Landsvirkjun og Eyri Invest ehf. fyrir stuðninginn.
Álit
Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.