19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Agile aðferðir hjá Landsbankanum: Innleiðing, þróunarferli og umbætur

Agile aðferðir hjá Landsbankanum: Innleiðing, þróunarferli og umbætur

Þann 16. febrúar næstkomandi verður fyrirlestur hjá Agile netinu í samstarfi við Dokkuna og Háskólann í Reykjavík.

Á fyrirlestrinum mun Birna Íris fara yfir þróunarferil hugbúnaðar hjá Landsbankanaum ásamt því að segja lítillega frá uppbyggingu teyma og innleiðingu Agile aðferðafræða hjá bankanum. Einnig mun hún segja frá innri umbótaverkefnum og þeirri aðferð sem notuð er við að keyra þau áfram.

Framsögumaður

Birna Íris Jónsdóttir er tölvunarfræðingur sem hefur unnið í faginu í 10 ár. Hún hefur sinnt forritun, vörustjórn (sem Product Owner) og starfar nú sem deildarstjóri UT hugbúnaður hjá Landsbankanum. 

Agile samstarfið

Fundurinn er haldinn í samstarfi Agile netsins, Dokkunnar og Háskólans í Reykjavík. Fundirnir eru öllum opnir, ókeypis og boðið er upp á samlokur og gos.

Fundarstaður

Fundurinn er haldinn í Háskólanum í Reykavík, Menntavegi 1, stofu M101.

Skráning á fundinn hér

 

    

     

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan