19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Stefnumörkun viðskiptagreindar

Stefnumörkun viðskiptagreindar

Viðskiptagreindalausnir hafa verið að sækja í sig veðrið undanfarin ár og upplifa flestir þeirra sem ná góðu valdi á henni, aukna skilvirkni og betri dreifingu upplýsinga. Þessar lausnir eru hinsvegar gerðar til þess að brúa bilið á milli upplýsingatæknideildarinnar og viðskiptahliðarinnar, sem felur í sér að bæði ný og gömul vandamál koma uppá yfirborðið og bregðast þarf sérstaklega við þeim. Þessvegna er mikilvægt að hafa skýra stefnu sem nýtur stuðnings beggja vegna borðsins. Þessi fyrirlestur kynnir viðskiptagreindina frá fræðilegu sjónarmiði og tekur á því helsta sem þarf að hafa í huga varðandi stefnumörkun viðskiptagreindar.

Framsögumaður

Hinrik Jósafat Atlason

Hinrik hefur unnið hjá Advania frá því í september 2011 en hefur unnið við viðskiptagreind frá árinu 2006 með sérstaka áherslu á samskipti, aðgengi upplýsinga og nothæfni. Bakgrunnur hans er MSc í gervigreind og BSc í tölvunarfræði.

Fundarstaður

Advania, Ármúla 2, 108 Reykjavík

Skráning á fundinn hér

 

Efnisflokkar: Fréttir, Fundir

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan