19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Styrkleikaþjálfun: Styrkleikabyggð nálgun

Styrkleikaþjálfun: Styrkleikabyggð nálgun

7.febrúar í Dokkunni

Vinnustofa um hvernig vinna megi með starfsmönnum í starfsþróun, til dæmis í kjölfar frammistöðusamtals. Markmiðið með vinnustofunni er að kynna hvernig ná megi fram ávinningi með eftirfarandi í huga:

  • Aukin árangur - Að þekkja og beina styrkleikum í þá átt þannig að starfsfólk nái sem bestri frammistöðu.
  • Aukinn framleiðni og markmið - Samstilla styrkleika þannig að markmið náist frekar og framleiðni aukist.
  • Árangursrík hæfnisþjálfun - Finna sérstaka hæfni hvers starfsmanns og virkja hana til að vinna að verkefnum og markmiðum.
  • Bæta samvinnu og samstarf - Auðvelda stjórnendum og starfsmönnum að byggja upp sameiginlegt tungumál um styrkleika og veikleika.
  • Auka þátttöku og bæta velferð - Vita hvernig á að viðhalda þátttöku hjá starfsmönnum með því að greina og nota styrkleika til að bæta velferð.
  • Koma í veg fyrir að starfsmenn brenni út - Finna og greina á hvaða sviðum starfsmenn eru í hættu á að brenna út og finna leiðir til að koma í veg fyrir það.

Dagskrá

08:30 - 08:45 Kynning á jákvæðri sálfræði

08:45 - 09:20 Styrkleikaþróun
Stutt kynning á Realise2 styrkleikamódelinu. Þátttakendur greina eigin styrkleika og annarra. Styrkleikaþróun, vannýttir styrkleikar, styrkleikablinda og ofnotkun styrkleika.

09:20 – 09:40 Styrkleikabyggð stjórnun
Styrkleikbyggð nálgun, jákvæðni og árangur. Markvissar leiðir til að finna og nýta styrkleika starfsmanna og teyma. Listin að hrósa á réttan hátt og starfsmannasamtal sem er endurnærandi og hvetjandi.

09:40 - 10 :00 Umræður
Umræður um jákvæða sálfræði og styrkleikanálgun og á hvaða hátt þátttakendur geta nýtt styrkeikanálgun á eigin vinnustað.

Framsögumaður

 

Anna Jóna Guðmundsdóttir

Anna Jóna er reyndur styrkleikaþjálfi og hefur þjálfað einstaklinga og hópa. Hún er reyndur fyrirlesari og hefur haldið fyrirlestra um styrkleikabyggða nálgun og leiðir til nota aðferðir jákvæðrar vinnusálfræði i fyrirtækjum og stofnunum fyrir jafnt smærri sem stærri hópa. Meira um Önnu.

Fundarstaður

Klak nýsköpunarmiðstöð, Ofanleiti 2, 2. hæð stofa 201

Skráning á fundinn hér

 

 

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan