19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Hafnarfjörður - velkominn í Dokkuna

Hafnarfjörður - velkominn í Dokkuna

Við bjóðum Hafnarfjarðarbæ velkominn í Dokkuna. Það er ánægjulegt að sveitarfélögum er að fjölga í Dokkunni enda Dokkan afnar hagstæður kostur á tímum niðurskurðar á öllum sviðum.

Um Hafnarfjörð

  • Hafnarfjörður er eitt af stærstu sveitarfélögum landsins.
  • Bæjarbúar í september 2009 voru 26.104, álfar og huldufólk ekki talið með.
  • 5% af íbúum Hafnarfjarðar eru af erlendu bergi.

Grunnskólar

Grunnskólar eru 8 talsins með rúmlega 3.651 nemanda eða um 16% íbúa. Almennir bekkir í grunnskólunum öllum voru 175 að tölu og meðalfjöldi nemenda í bekk var 20,9 nemendur en sama tala haustið áður var 21,3. Nemendum fækkaði um 5 frá síðasta skólaári þrátt fyrir talsverða fólksfjölgun í bænum. Við grunnskóla Hafnarfjarðar eru starfræktar 6 sérdeildir ef móttökudeild nýbúa er talin með. Þetta eru sérdeild í Engidalsskóla, Víðistaðaskóla, Lækjarskóla og Öldutúnsskóla auk fjölgreinadeildar og móttökudeildar nýbúa sem eru deildir í Lækjarskóla. Nemendur sérdeilda eru 2,5% nemenda í Hafnarfirði haustið 2005.

  • Leikskólar: 15 með um 1.400 börn.
  • Tónlistarskólinn: 644 nemendur.
  • Ferðamenn: áætlaður fjöldi 75.000.
  • Bæjarlandið: um 147 ferkílómetrar.

Meira um Hafnarfjörð

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan