Við bjóðum starfsfólk Mannvit velkomið í hóp metnaðarfullra Dokkufyrirtækja
Um Mannvit
Mannvit býður þjónustu á sviði verkfræði, ráðgjafar, stjórnunar, rekstrar og EPCM-verkefnastjórnunar. Mannvit er stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni og þar starfa um 400 reynslumiklir verkfræðingar og tæknimenntað starfsfólk með fjölþætta reynslu á flestum sviðum verkfræðiþjónustu.
Sagan
Mannvit var stofnað árið 2008 við sameiningu Hönnunar hf., VGK hf. sem veitt hafa verkfræðiráðgjöf síðan 1963 og Rafhönnunar hf. frá 1969. Aðalskrifstofa Mannvits er að Grensásvegi 1 í Reykjavík og einnig er starfsemi á Grensásvegi 11, Skeifunni 3 og Ármúla 42, ásamt sjö starfsstöðvum utan Reykjavíkur: á Akranesi, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Selfossi, í Reykjanesbæ ásamt starfsemi erlendis.
Mannvit býður uppá alhliða þjónustu á sviði verkfræði og tækni og hefur á að skipa reyndum sérfræðingum á flestum sviðum verkfræðiþjónustu.
Þjónustan skiptist í eftirfarandi sérsvið:
- Iðnaður
- Endurnýjanleg orka
- Vatnsaflsvirkjanir
- Jarðvarmavirkjanir
- Raforkuflutningur og dreifing
- Byggingar
- Rannsóknarstofa
- Umhverfismál
- Mælingar og rannsóknir
- Verkefnastjórnun
- Samgöngur, veitur og skipulag
- Upplýsingatækni
Mannvit er leiðandi í ráðgjöf og lausnum með áherslu á græna orku og iðnað á Íslandi, Evrópu og Ameríku. Mannvit er með starfsstöðvar í Ungverjalandi, Bretlandi, Chile og Bandaríkjunum. Mannvit hefur skýra framtíðarsýn og stefnir á að efla starfsemi sína á alþjóðamarkaði þannig að árið 2015 verði 50% af heildarveltu tengd verkefnum erlendis.