Við bjóðum starfsfólk Innanríkisráðuneytisins velkomið í hóp metnaðarfullra Dokkufélaga.
Um Innanríkisráðuneytið
Innanríkisráðuneytið tók til starfa 1. janúar 2011 með samruna dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hins vegar, í samræmi við lög nr. 121/2010 um breytingu á Stjórnarráði Íslands sem samþykkt voru á Alþingi 9. september 2010.
Verkefni ráðuneytisins
Verkefni innanríkisráðuneytisins skiptast á sex skrifstofur; skrifstofu almannaöryggis, skrifstofu fjármála og rekstrar, skrifstofu innviða, skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga, skrifstofu réttarfars og stjórnsýslu og skrifstofu stefnumótunar og þróunar.