Við bjóðum starfsfólk Atlantsolíu velkomið í hóp metnaðarfullra Dokkufélaga.
Um Atlantsolíu
Atlantsolía var stofnað í júní 2002 og í dag eru starfsmenn fyrirtækisins 21. Áhersla er lögð á lágt verð eldsneytis til allra aðila og virka samkeppni. Eigendur Atlantsolíu eru Guðmundur Kjærnested og Brandon C. Rose. Fyrirtækið er staðsett að Lónsbraut 2 Hafnarfirði.
AO hefur yfir að ráða góðum flota tækja til afgreiðslu eldsneytis á markaðssvæði fyrirtækisins, en það liggur að megin hluta frá Snæfellsnesi austur að Kirkjubæjarklaustri. Allur búnaður er af bestu gerð. Við Óseyrarbraut 23 í Hafnarfirði er staðsett birgðastöð fyrirtækisins. Hún samanstendur af þremur tönkum sem hver rúmar um fjórar milljón lítra.
Haustið 2003 keypti Atlantsolía lóðina að Kópavogsbraut 115, en þar hefur verið rekinn söluturn og bensínsala í hartnær fjörtíu ár. Sala á díselolíu hófst þar 2. desember 2003 og 8. janúar 2004 var fyrsti söludagur með bensín.
Í framhaldinu hafa verið opnaðar 17 stöðvar á markaðssvæði fyrirtækisins.