19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

VSI Öryggishönnun og ráðgjöf er nýr aðili að Dokkunni

VSI Öryggishönnun og ráðgjöf er nýr aðili að Dokkunni

Við bjóðum VSI Öryggishönnun og ráðgjöf velkomið í Dokkuna. 

Um VSI

Sagan

VSI var stofnað árið 1987 sem sérhæft verkfræðifyrirtæki til að svara kröfum markaðarins um óháða ráðgjöf í öryggismálum sem ekki væri lituð af hagsmunum söluaðila öryggisbúnaðar. Í upphafi var áherslan fyrst og fremst á tæknileg öryggismál en fljótlega breikkaði starfssviðið og nær í dag yfir flest svið öryggismála. Frá stofnun stofunnar höfum við einbeitt okkur að þessari sérþekkingu.

Starfsmenn

VSI er nú ráðgjafafyrirtæki með sérfræðiþekkingu í flestum greinum öryggismála. Starfsmenn VSI hafa mismunandi bakgrunn og menntun en hafa það sameiginlegt að vera sérfræðingar á einu eða fleiri sviðum öryggismála. Mikil áhersla er lögð á praktíska reynslu samhliða góðri menntun.

Sérfræðiþekkingin

Sérfræðiþekking okkar nær m.a. yfir vinnuvernd, brunavarnir, umhverfisvernd, rekstraröryggi, innbrot, skemmdarverk og hleranir. Einnig ráðgjöf vegna umgangsstýringa, öryggismyndavélakerfa, upplýsingaöryggis, þjálfunar starfsfólks, viðbragðsáætlana, skipulagningar og endurþjálfunar vaktmanna ásamt vaktmannastjórnun svo eitthvað sé nefnt.

Sérstaðan

Sérstaða VSI er að fyrirtækið starfar algerlega óháð söluaðilum í greininni og öryggismál er okkar kjarnastarfsemi. Mikilvægt er fyrir fyrirtæki og stofnanir að hafa möguleika á að nálgast ráðgjöf óháðra sérfræðinga sem ekki hafa hag af sölu búnaðar og geta borið saman lausnir söluaðila og lagt fram tillögur sem byggjast á að hámarka öryggi á sem hagkvæmastan hátt.

Viðskiptavinir

Viðskiptavinir VSI koma úr öllum geirum þjóðfélagsins. VSI hefur starfað að stórum og smáum verkefnum fyrir fyrirtæki, stofnanir, ríki og sveitarfélög.

Yfirsýnin

Sérfræðingar VSI hafa unnið að verkefnum á nánast öllum sviðum öryggismála enda skarast oft hinir ýmsu þættir þeirra. Þessi yfirsýn VSI hefur komið að góðum notum við úrlausnir á ýmsum verkefnum, og gert okkur kleyft að benda að hagkvæmari heildarlausnir en annars hefði orðið.

Gæðamálin

VSI vinnur að því að fá ISO 9001 og ISO 14001 vottun.

Meira um VSI hérna

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan