BT er alþjóðlegt þjálfunarfyrirtæki, einnig þekkt sem PEPWORLDWIDE

" /> IBT er nýr aðili að Dokkuni > Dokkan
19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

IBT er nýr aðili að Dokkuni

IBT er nýr aðili að Dokkuni

Við bjóðum IBT á íslandi velkomið í Dokkuna.

Um IBT

BT er alþjóðlegt þjálfunarfyrirtæki, einnig þekkt sem PEPWORLDWIDE

Starfsmenn

Starfsmenn IBT-PEPWORLDWIDE á Íslandi eru hjónin Gunnar Jónatansson og Rósa Kristin Benediktsdóttir.

Gunnar er framkvæmdastjóri og aðalþjálfari IBT á Íslandi. Hann hefur próf í verkefnastjórnun frá HÍ og markþjálfun frá Evolvia og IBT Learning & Development. Gunnar var áður framkvæmdastjóri húsnæðisfélagsins Búseta hsf. Undanfarin tvö ár hefur Gunnar einnig sinnt framkvæmdastjórn Egilshallarinnar fyrir Reginn ehf.

PEPWORLDWIDE skipuleggur grunnþjálfun allra starfsmanna sinna og tekur Gunnar reglulega þátt í henni.

Gunnar stofnaði félagið Ungir frumkvöðlar og rekur það í sjálfboðaliðastarfi. Hann hefur verið mjög virkur í félagsstörfum í gegnum tíðina. Hann var um tíma landsforseti Junior Chamber á Íslandi og umsjónarmaður þjálfunar þeirra samtaka í Evrópu. Hann var í nokkur ár formaður Skautafélagsins Björninn.

Rósa Kristín er PEP þjálfari hjá IBT. Hún sinnir nú fyrst og fremst markaðsmálum fyrir IBT á jafnhliða því sem hún stundar nám við háskólann að Hólum og verkefnastjórnun hjá Ungum frumkvöðlum.
PEPWORLDWIDE skipuleggur grunnþjálfun allra starfsmanna sinna og tekur Rósa reglulega þátt í henni.

IBT á Íslandi er í eigu Gunnars, Rósu og Lenu Davidsson.

Almennar upplýsingar

IBT á Íslandi var stofnað sumarið 2005 . Við erum í Netlu, skrifstofugörðum, Nethyl 2b, 110 Reykjavík. Síminn er 578-1500 og 664-6555

Meira um IBT á Íslandi

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan