19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

Þróun eignaverðlíkana fyrir áhættustýringu

Þróun eignaverðlíkana fyrir áhættustýringu

Á fundinum mun Sigurður Ingólfsson hjá Áhættustýringu ehf.  fjalla um eignaverðlíkön, sem þróuð hafa verið hjá Áhættustýring ehf.  um nokkurra ára skeið. Annars vegar er um að ræða tímaraðalíkan af íslenska fasteignamarkaðnum og hins vegar markaði fyrir notaðar bifreiðar.

Um aðferðafræðina (líkönin)

Talið er að þessi aðferðafræði geti auðveldað vinnu við áhættumat og lánaákvarðanir, verðmat og álagsprófanir lánasafna. Ef auðkenni undirliggjandi veðandlaga eru þekkt má þannig t.d. horfa í gegnum "vafninga" og fylgjast með gæðum undirliggjandi veðsafns sem endurgreiðslan byggist á.

Líkanið veitir m.a. upplýsingar um:

  • Vænt söluverð hverrar eignar,
  • Óvissu vænts söluverðs og
  • Innbyrðis fylgni söluverðs hverra tveggja eigna.

 Á grundvelli þessara upplýsinga er hægt að:

  • Að leiðrétta verðmat eignasafnsins fyrir áhættu (margar skilgreiningar koms til greina, t.d.VaR en einnig aðrir mælikvarðar sem byggja á framangreindum grunnupplýsingum).
  • Álagsprófa slík eignasöfn ítarlega og skipulega, þ.e. spyrja spurninga um það hvernig eigið fé greiðenda í undirliggjandi safni þróast við tilteknar aðstæður. Þetta býður upp á að verðleggja t.d. með hjálp valréttafræða.

Samantekt

Í sem stystu máli má segja að á grundvelli þeirra upplýsinga sem eignaverðslíkön þessi veita, megi meðhöndla algeng veðandlög í neytendalánum að mörgu leyti á svipaðan hátt og eignir á verðbréfamarkaði að því er varðar eignastýringartækni. Auk þess að nýtast við áhættustýringu, stefnumótun og ferla innan fjármálastofnana getur tæknin veitt mikilvægan stuðning við verðbréfaða skuldabréfaútgáfu. Ef þeim mælikvörðum og forvörnum sem þetta býður upp á er beitt af hæfilegri varfærni, getur þessi tækni einnig bætt stöðu endafjárfesta í ABS eignum og eftirlitsstjórnvalda verulega.

Fundarstaður

Arionbanki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Skráning á fundinn hér

 

 

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan