Við fögnum því innilega að fá Marel í hóp metnaðarfullra Dokkufyrirtækja
Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa um 3.500 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Hjá Marel finnurðu allt sem þú þarft á einum stað. Eftir kaup á nokkrum framúrskarandi fyrirtækjum á undanförnum árum býður Marel upp á heimsþekkt vörumerki á borð við Stork Poultry Processing og Townsend Further Processing. Vöruframboð fyrirtækisins spannar allt framleiðsluferlið, frá frumvinnslu hráefnis til pökkunar í neytendaumbúðir.
Vörur
Marel býður upp á mikið úrval háþróaðra tækja og hugbúnaðar, þar á meðal vogir, flokkara, skurðarvélar, sagir, eftirlitsbúnað, beintínsluvélar, frysta, pökkunar- og merkingarvélar, svo eitthvað sé nefnt. Þá býður fyrirtækið upp á samþætt heildarkerfi sem henta á öllum helstu sviðum matvælavinnslu ásamt lausnum sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavina.
Nýsköpun
Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel umbreyst úr sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Fyrirtækið leggur að meðaltali 5-6% af veltu í rannsóknar- og þróunarstarf á ári hverju, sem er hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni. Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir frá Marel gera framleiðendur kleift að hámarkað nýtingu, afköst og arðsemi.
Frá upphafi hefur Marel lagt sérstaka áherslu á gæði og áreiðanleika, en árið 1997 fékk fyrirtækið ISO 9001 vottun á gæðakerfi sínu fyrir vöruþróun, sölu, framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini.