Perla, sem er framkvæmdastjóri Áhættustýringarsviðs Landsbankans er með MSc gráðu í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði hjá Seðlabanka Íslands á árabilinu 2005-2010 og hjá Rannsóknarnefnd Alþingis árið 2009. Perla sinnti m.a. eftirliti með fjármálafyrirtækjum og -mörkuðum hjá Seðlabanka Íslands og annaðist gerð áhættulíkana fyrir íslenskan fjármálamarkað. Perla var ráðin forstöðumaður Áhættustýringar Landsbankans í apríl 2010 og framkvæmdarstjóri í október.
Perla fjallaði um áhættustýringu Landsbankans á fundi Áhættustýringarhópsins í febrúar 2011.