19. maí 2012
   
Bookmark and Share 25 Latest Articles Allar greinar | Skjalasafn | Leit

BDO Ísland er nýtt fyrirtæki í Dokkunni

BDO Ísland er nýtt fyrirtæki í Dokkunni

Velkomin BDO Ísland!

SAGA BDO

Saga BDO er orðin löng og farsæl. Á síðasta ári varð BDO 100 ára en það á rætur sínar að rekja til ársins 1910 er það var stofnað undir merkjum Seidman and Seidman í New York af Maximillian L. (M.L.) Seidman.

Saga BDO er saga sífelldrar aðlögunar að breyttu umhverfi og breytilegum þörfum viðskiptavina sinna.
Hið eiginlega alþjóðlega samstarf BDO hófst árið 1963 þegar fyrirtæki frá Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Kanada sameinuðu krafta sína til að deila þekkingu og þróa kunnáttu sína viðskiptavinum sínum til frekari hagsbóta.

Frá 1963 var BDO þekkt undir nafninu „Binder Seidman International Group“ til ársins 1973 er nafninu var breytt í „Binder Dijker Otte & Co: BDO".

Stoðir BDO voru styrkar og umfang rekstrarins óx hratt án þess að missa sjónar á heimavellinum og nú þjónar BDO viðskiptavinum í 120 löndum. Sem alþjóðlegt net sérfræðifyrirtækja var ákveðið að bæta skammstöfuninni BDO fyrir framan nafn hvers fyrirtækis, í hverju landi fyrir sig. Það, ásamt kynningu á nýju merki, sýndi og sannaði hversu vel staðbundin þekking hvers lands var samþætt alþjóðlegum styrkleika BDO-keðjunnar.

Árið 2009 var nafninu einfaldlega breytt í BDO. Var það gert til að undirstrika þann ásetning okkar að þjónusta viðskiptavini okkar á sem bestan hátt og standa í fremstu röð í alþjóðlegum samanburði. Við erum aðilar að BDO International Limited sem er net sérfræðifyrirtækja um allan heim.

Þjónusta BDO

BDO veitir þjónustu á eftirfarandi sviðum:

  • Endurskoðun
  • Reikningsskilum
  • Fyrirtækja- og fjármálaráðgjöf
  • Stjórnunarráðgjöf
  • Skatta- og lögfræðiráðgjöf
  • Bókhaldsþjónustu

 

Lesa má nánar um nánar um BDO hér

 

 

Álit Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.
Einungis skráðir notendur geta sent inn álit.

Dokkan   |   Dagskrá   |   Aðildarfyrirtæki   |   Málefnasvið   |   Fréttir   |   Ráðstefnusvið   |   Framsögufólk   |   Sviðsstjórar   |   Allir fundir
Höfundarréttur (c) 2012 Dokkan