|
|
Markþjálfun í fyrirtækjum: Leiðtogar og stjórnendur
Athyglisverður fundur um markþjálfun í fyrirtæjum var á dagskrá Dokkunnar núna í mars. Aðalframsögumaður fundarins var Unnur Valborg Hilmarsdóttir vottaður markþjálfi. Unnur hefur mikla og góða reynslu af því að vinna með stjórnendum og leiðtogum að uppbyggingu og framförum á öllum sviðum og vakti framsaga Unnar verulega athygli og áhuga fundarmanna. Fundurinn var haldinn hjá Landsvirkjun og þær Sigþrúður og Ragnhildur sögðu fundargestum í lokin frá því hvernig markþjálfun hefur verið beitt hjá fyrirtækinu á undanförnum árum - en þær eru báðar vottaðir ACC markþjálfar.
Efni Unnar Valborgar frá fundinum er núna aðgengilegt á Dokkutorginu - hér - og einnig greinarnar úr HBR sem hún mælti mér.
Njótið!
Álit
Enginn hefur skrifað hugleiðingar við greinina, gjörðu svo vel.