TM Software er orðin aðili að Dokkunni - við bjóðum þau velkomin í hóp metnaðarfullra Dokkufyrirtækja.
Um TM Software
TM Software er framúrskarandi hugbúnaðarfyrirtæki sem nýtir þekkingu, reynslu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina sinna.
Lausnaframboð okkar samanstendur af okkar eigin hugbúnaðarvörum og vörum öflugra samstarfsaðila okkar.
Hjá TM Software starfa um 100 sérfræðingar með reynslu víðsvegar úr atvinnulífinu. Þeir, ásamt yfir tuttugu ára reynsla TM Software, hefur skapað félaginu sérstöðu á markaði í ráðgjöf, þjónustu og hugbúnaðarþróun fyrir alla geira atvinnulífsins.