Við fögnum aðild Elkem að Dokkunni og bjóðum þau velkomin í hóp metnaðarfullra Dokkufyrirtækja.
Um Elkem
Elkem Ísland ehf., áður Íslenska járnblendifélagið, er hluti af Elkem AS. Fyrirtækið selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Elkem á Íslandi hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt á járnblendi og býður nú sérhæfðari vöru til viðskiptavina.
Umhverfið
Okkur hjá Elkem er annt um umhverfið og að takmarka neikvæð áhrif allrar framleiðslu. Því leitumst við eftir því að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á umhverfið.
Mannauðurinn
Við leggjum mikla áherslu á að Elkem sé þekkt fyrir gott starfsfólk sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á starfsemi fyrirtækisins og þykir eftirsóknarvert að starfa hjá því.
Nánar um Elekm - smellið hér