Við bjóðum 365 velkomið í Dokkuna og fögnum aðild svo öflugs fjölmiðlafyrirtækis í hóp metnaðarfullra Dokkufyrirtækja.
Um 365
365 er þjónustufyrirtæki á sviði blaðaútgáfu, sjónvarps- og útvarpsreksturs og vefmiðlunar. Fyrirtækið rekur fimm sjónvarpsstöðvar, fimm útvarpsstöðvar og útbreiddasta dagblað landsins - Fréttablaðið.
Fjölmiðlahópur Dokkunnar
Fjölmiðlar og fagmennska er viðfangsefni þekkingarhóps um fjölmiðlun. Fjölmiðlar á Íslandi hafa aldrei verið eins margir og marvíslegir eins og í dag - fyrir utan alla þá erlendu fjölmiðla sem Íslendingar geta notið hér heima. Fagmennska á sviði fjölmiðlunar, hvort sem það er á fréttastofnum eða í annari dagskrágerð hefur þess vegna aldrei verið mikilvægari.
Hverjum þjónar hópurinn?
Hópum er ætlað þjóna metnaðarfullu fagfólki sem starfar við fjölmiðlun. Hópurinn mun halda sinn fyrsta fund í febrúar 2011 og þar verða einnig lagðar línur varðandi starf hópsins - jafnvel hvort skipta þurfi hópnum upp í fleiri sérhæfðari hópa.
Fjölmiðlun á Dokkutorginu
Á Dokkutorginu er allt efni frá fundum hópsins, tenglasafn, greinar, myndbönd o.fl. um fjölmiðla geymt. Allir meðlimir hópsins geta sett inn efni og athugasemdir á torginu.
Skoða hópinn á Dokkutorgin eða skrá mig í hópinn
Hafa samband við hópstjóra