Við höfum áður rætt um markþjálfun hér á dokkan.is og enn funda markþjálfar. Að þessu sinni stendur markþjálfunarhópurinn fyrir bókamessu þann 30. nóv. nk. í húsakynnum Evolvia við Klapparstíg 20, á 5. hæð.
Á fundinum mun Matilda Gregersdotter mun kynna fyrir okkur bókina Coaching Jobseekers eftir Karin Tenelius. Sjá nánar um bókina og höfundinn: www.coachingjobseekers.com.
Markþjálfar eru hvattir til að mæta með sínar uppáhalds bækur og tímarit um markþjálfun, sýna kollegunum og spjalla um innihaldið.
Markmið bókamessunar er að markþjálfar hittist, efli tengslin og skoði og ræði bækur og tímarit um fagið.
Boðið verður upp á eitthvað að drekka og narta í.
HÆGT ER AÐ SKRÁ SIG Á FUDNINN HÉR.
Nánar um Evolvia:
