Eitt heitasta umræðuefnið þetta misserið er hvort fyrirtæki eigi að leyfa starfsfólki óheftan aðgang að Facebook og þá til hvers?
Á fundi upplýsingatæknihópsins þann 24. nóv. nk. heimsækjum við Skýrr og fáum að skyggnast inn í þeirra stefnu og sýn á notkun Facebook á vinnustaðnum.
Hvernig notar Skýrr Facebook?
Skýrr er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins með tæplega 500 starfsmenn. Fyrirtækið notar samfélagsmiðilinn Facebook með þrenns konar hætti. Afar settlega á fyrirtækjamarkaði (B2B), hressilega á neytendamarkaði (B2C) gegnum EJS sem er hluti af Skýrr og mjög markvisst gagnvart starfsfólki.
Starfsfólk Skýrr á Facebook
Starfsfólk Skýrr er hvatt til að ræða vinnustaðinn og viðburði þar á Facebook. Ofnotkun á Facebook á vinnutíma er ekki vandamál hjá Skýrr og það hefur aldrei hvarflað að stjórnendum fyrirtækisins að loka á Facebook, frekar en MSN eða önnur samskiptatæki. Það er hins vegar hægar sagt en gert fyrir fjölmenna vinnustaði á fyrirtækjamarkaði að hagnýta sér Facebook með markvissum hætti. Skýrr tæklar þetta verkefni að mörgu leyti með handvirkri og gamaldags lágtækni.
Framsögumaður
Stefán Hrafn Hagalín markaðsstjóri Skýrr spjallar um þetta og margt fleira sem lýtur að ásýnd og viðmóti fyrirtækisins á netinu.
Tími: 24. nóv. kl. 8.30 til 10.00
Staður: Skýrr, Ármúla 2, 108 Rvk.
SKRÁNING Á FUNDINN HÉR